Jóhann Birnir Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍR sem leikur í 2. deild. Hann mun vera þjálfari liðsins ásamt Árna Frey sem var ráðinn í sumar.
Þá mun hann stýra uppbyggingu afreksþjálfunar fyrir yngri iðkendur félagsins. Jóhann var síðast á mála hjá FH þar sem hann starfaði sem afreksþjálfari.
Hann lagði skóna á hilluna árið 2017 en hann lék lengst af með Keflavík. Þá var hann á mála hjá Watford, GAIS og Örgryte í atvinnumennskunni.
„Það er sönn ánægja að bjóða Jóhann Birni velkominn í Breiðholtið - Áfram ÍR!" Segir í fréttatilkynningu ÍR.
ÍR varð í 6. sæti í 2. deild í sumar en var í 8. sæti síðasta sumar.
Athugasemdir