Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 26. september 2022 18:16
Ívan Guðjón Baldursson
Njarðvík fær besta leikmann Reynis í sínar raðir (Staðfest)
Mynd: Njarðvík Twitter

Njarðvík er búið að staðfesta komu nýs leikmanns í raðir félagsins.


Sá heitir Magnús Magnússon og er fæddur árið 1999. Hann kemur úr herbúðum Reynis í Sandgerði þar sem hann var valinn leikmaður ársins í sumar.

Magnús skoraði fimm mörk í tuttugu leikjum er Reynir féll úr 2. deild og hreif um leið þjálfarateymi Njarðvíkinga. Njarðvík rúllaði deildinni upp og endaði með 55 stig úr 22 leikjum.

Magnús skrifar undir þriggja ára samning við Njarðvíkinga og fær að spreyta sig í næstefstu deild í fyrsta sinn.

„Knattspyrnudeildin býður Magnús velkominn! 💚"


Athugasemdir
banner
banner
banner