Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24391 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR26.11.2025, 12:30

Aron Snær gerir tveggja ára samning við Víking (Staðfest)

Aron Snær Friðriksson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking en hann kemur til Íslandsmeistaranna frá Njarðvík. Aron er 28 ára markvörður sem hefur spilað með Breiðabliki, Tindastól, Vestra, Fylki, KR og Njarðvík á sínum ferli. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var hann á leið til Þróttar þegar tilboð barst frá Víkingi og er hann nú búinn að skrifa undir samning í Víkinni.

FRÉTTIR26.11.2025, 08:00

Bart Kooistra yfirgefur HK (Staðfest)

HK hefur sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að Bart Kooistra muni ekki spila með liðinu næsta sumar. Hann er 24 ára gamall hollenskur framherji sem gekk til liðs við félagið síðasta sumar. Hann kom við sögu í 10 leikjum í Lengjudeildinni og skoraði tvö mörk.

FRÉTTIR25.11.2025, 16:00

Theodór Elmar ekki lengur hjá KR (Staðfest)

Theodór Elmar Bjarnason er ekki lengur aðstoðarþjálfari KR. Hann staðfestir það í samtali við Fótbolta.net í dag. Elmar er uppalinn KR-ingur sem fór ungur að árum út í atvinnumennsku og var í 17 ár erlendis sem atvinnumaður áður en hann sneri aftur heim árið 2021 og spilaði í þrjú og hálft ár með KR áður en hann lagði skóna á hilluna. Hann var aðstoðarmaður Óskars Hrafns Þorvaldssonar á liðnu tímabili og var auk þess með 2. flokkinn.

FRÉTTIR25.11.2025, 15:00

Hákon Ingi yfirgefur HK (Staðfest)

HK hefur sent frá sér tilkynningu þar sem Hákon Ingi Jónsson er kvaddur, hann mun ekki spila með liðinu á komandi leiktíð. Hann er þrítugur sóknarmaður sem uppalinn er hjá Fylki en hefur einnig leikið með HK, ÍA og Fjölni á sínum ferli. Hann hefur skorað 86 mörk í 339 KSÍ leikjum á ferlinum. Hann lék fjóra U16 landsleiki á sínum tíma. Hann kom einungis við sögu í fimm deildarleikjum með HK í sumar.

FRÉTTIR25.11.2025, 13:30

Viktor Andri yfirgefur Þrótt (Staðfest)

Viktor Andri Hafþórsson hefur kvatt Þrótt og heldur á önnur mið. Hann gekk til liðs við Þrótt fyrir tímabilið 2024 og skoraði 14 mörk í 54 leikjum fyrir liðið. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Þrótt. <i>„Við viljum þakka Viktori Andra fyrir tíma sinn hjá félaginu og óska honum velfarnaðar í næsta skrefi sínu,"</I> segir í tilkynningu Þróttar. Sóknarmaðurinn er fæddur árið 2001 og er uppalinn hjá Fjölni. Hann fór í Keflavík fyrir tímabilið 2023 og svo í Þrótt eftir það tímabil. Á sínum tíma lék hann fimm leiki fyrir U17 landsliðið.

FRÉTTIR25.11.2025, 11:57

Fyrirliðinn yfirgefur Keflavík (Staðfest)

<i>„Eftir 15 ár í Keflavíkurtreyjunni er komið að kaflaskilum hjá fyrirliðanum okkar Kristrúnu Ýr,"</I> segir í tilkynningu Keflavíkur. Fyrirliðinn Kristrún Ýr Holm hefur ákveðið að yfirgefa Keflavík og halda á önnur mið. Hún er fædd árið 1995 og á að baki 273 leiki, alla með Keflavík, og hefur í þeim skorað 13 mörk.

FRÉTTIR25.11.2025, 11:15

FH fær unglingalandsliðsmann frá Breiðabliki (Staðfest)

FH hefur krækt í unglingalandsliðsmanninn Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki. Hann skrifar undir samning við FH sem gildir út tímabilið 2028. Hann er fæddur árið 2009 og á að baki þrjá leiki með U15 landsliðinu. Leikina spilaði hann í október 2023 á æfingamóti í Póllandi. Hann lék með 2. og 3. flokki Breiðabliks í sumar.

FRÉTTIR25.11.2025, 10:30

Valur fær öflugan leikmann frá FH (Staðfest)

Margrét Brynja Kristinsdóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur til félagsins frá FH. Margrét, sem er 19 ára miðjumaður, skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda. Hún er uppalin í Breiðabliki en fór í FH fyrir tímabilið 2023. Hún á að baki 97 KSÍ leiki og hefur í þeim skorað 14 mörk. Þá á hún að baki 37 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur í þeim skorað átta mörk. Hún spilaði ekki leik í um þrjá mánuði í sumar en kom þrátt fyrir það við sögu í 15 leikjum í Bestu deildinni og skoraði tvö mörk. FH endaði í öðru sæti deildarinnar og Valur því sjötta. Hún skoraði sigurmarkið gegn Val í undanúrslitum Mjólkurbikarsins, skoraði á 119. mínútu leiksins.

FRÉTTIR24.11.2025, 17:23

Dominik Radic í HK (Staðfest)

HK tilkynnti rétt í þessu að Dominik Radic væri genginn í raðir félagsins. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Hann er 29 ára króatískur framherji sem fæddur er í Hannover í Þýskalandi. Hann kom til Njarðvíkur fyrir tímabilið 2024 og lék undir stjórn Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, nýs þjálfara HK, síðustu tvö tímabil.

FRÉTTIR24.11.2025, 17:10

Alex Freyr í Njarðvík (Staðfest)

Alex Freyr Elísson er genginn í raðir Njarðvíkur en hann kemur til félagsins frá Fram. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Alex er 28 ára hægri bakvörður sem hefur einnig leikið með Breiðabliki og KA á sínum ferli. Hann var í takmörkuðu hlutverki hjá Fram á tímabilinu, kom einungis við sögu í níu leikjum í deild og bikar eftir að hafa skorað sex mörk í 22 leikjum í Bestu deildinni tímabilið 2024.

FRÉTTIR24.11.2025, 15:39

Vítor Matos orðinn stjóri Swansea (Staðfest)

Swansea City hefur ráðið Portúgalann Vítor Matos sem nýjan stjóra. Matos var í þjálfarateymi Liverpool en tók við portúgalska B-deildarliðinu Maritimo í júní. Swansea er í 20. sæti ensku Championship-deildarinnar og rak Alan Sheehan fyrr í þessum mánuði. Félagið vildi ráða hinn sænska Kim Hellberg sem ákvað hinsvegar að taka við Middlesbrough.

FRÉTTIR24.11.2025, 14:55

Hellberg ráðinn til Middlesbrough (Staðfest)

Svíinn Kim Hellberg hefur formlega verið ráðinn stjóri Middlesbrough. Hann lætur af störfum hjá Hammarby til að taka við af Rob Edwards sem hætti til að taka við Wolves. <i>„Kim er einstaklingur sem ég hef fylgst með í nokkurn tíma. Hann er spennandi þjálfari sem hefur vakið mikla athygli og gerði virkilega vel hjá Hammarby. Hann var strax ofarlega á blaði,"</i> segir Kieran Scott, yfirmaður fótboltamála hjá Boro.

FRÉTTIR24.11.2025, 06:00

Fylkir fær tvo leikmenn (Staðfest)

Þær Emilía Sif Sævarsdóttir og Arna Ósk Arnarsdóttir eru komnar til Fylkis og spila meðliðinu í 2. deild næsta sumar. Emilía Sif er uppalin í Fylki en hún kemur frá Fjölni þar sem hún spilaði frá 2022. Hún hefur spilað 28 leiki og skorað fimm mörk.

FRÉTTIR21.11.2025, 23:32

Marc McAusland í Víði (Staðfest)

Marc McAusland er genginn til liðs við Víði en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið. Hann er 37 ára gamall Skoti en hann gengur til liðs við félagið frá ÍR en hann yfirgaf Breiðholtsfélagið á dögunum. Hann hjálpaði ÍR-ingum að komast í umspil um sæti í Bestu deildina á fyrsta tímabili sínu og var valinn á bekkinn í lið ársins hér á Fótbolta.net.

FRÉTTIR21.11.2025, 19:30

Aron Snær yfirgefur Njarðvík (Staðfest) - Á leið í Þrótt

Aron Snær Friðriksson hefur yfirgefið Njarðvík en hann hefur ákveðið að leita á önnur mið. Hann er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið í Þrótt Reykjavík. Hann er 28 ára en hann fékk fæst mörk á sig í Lengjudeildinni síðasta sumar eða 24 mörk í 21 leik.

FRÉTTIR21.11.2025, 18:27

Eiður Atli til ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur keypt hinn 23 ára gamla Eið Atla Rúnarsson frá HK. Hann er uppalinn hjá HK en hann var á láni hjá ÍBV sumarið 2024. Hann spilaði 19 leiki þegar ÍBV vann Lengjudeildina.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.