FRÉTTIR18.11.2025, 12:08

Belginn Philippe Clement hefur verið ráðinn sem nýr stjóri Norwich. Félagið tilkynnti frá tíðindunum fyrir skömmu og segir þar að Clement hafi skrifað undir samning til ársins 2029.

Liam Manning hafði stýrði liðinu í upphafi tímabils en var látinn taka poka sinn í upphafi landsliðsgluggans fyrir rúmri viku. Norwich er í næst neðsta sæti Championship deildarinnar með aðeins 9 stig eftir fimmtán leiki.

Norwich vann síðast leik undir lok ágústmánaðar. Alls eru það ellefu leikir í röð sem liðið hefur ekki tekist að vinna, þar af hefur Norwich tapað átta sinnum.

FRÉTTIR17.11.2025, 19:00
Sigurjón Már Markússon hefur framlengt samning sinn við Njarðvík til ársins 2027. Njarðvíkingar greina frá þessum fregnum á í dag.
FRÉTTIR17.11.2025, 17:54
Guðmundur Arnar Svavarsson og Thibang Sindile Theophilus “Cafú” Phete hafa báðir framlengt samning sinn við Vestra og taka því slaginn með liðinu í Lengjudeildinni á næsta ári.
FRÉTTIR17.11.2025, 15:15
Svanberg Óskarsson hefur verið ráðinn til Tindastóls, hann er tekinn við sem þjálfari kvennaliðs félagsins. Hann tekur við liðinu af Donna sem var áðinn þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í síðasta mánuði.
Svanberg er fæddur árið 1997 og er á KSÍ skráður í KR. Hann kemur frá KÍ Klaksvík í Færeyjum þar sem hann þjálfaði unglingalið karla og var í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna. Þar áður var hann hjá Fortuna Hjörring í Danmörku.
Tindastóll féll úr Bestu deildinni í haust og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
FRÉTTIR16.11.2025, 20:13
Jökull Andrésson er genginn í raðir FH en hann kemur til félagsins frá Aftureldingu. Markmaðurinn skrifar undir samning sem gildir út 2028.
Jökull rifti samningi sínum við Aftureldingu í síðustu viku og á föstudag var tilkynnt að Mathias Rosenörn, aðalmarkmaður FH á síðasta tímabili, yrði ekki áfram. FH hafði áhuga á því að fá Jökul fyrir síðasta tímabil en þá samdi hann við Aftureldingu.
Jökull er 24 ára og er uppalinn hjá Aftureldingu en fór ungur að árum til Reading. Hann sneri aftur í Mosó 2024 og varði mark liðsins í öllum 27 leikjunum í Bestu deildinni í sumar.
FRÉTTIR16.11.2025, 14:44
Stjarnan hefur komist að samkomulagi við enska varnarmanninn Steven Caulker um að rifta samningi hans við félagið, bæði sem leikmaður og þjálfari, en þetta kemur fram í tilkynningu Stjörnumanna í dag.
FRÉTTIR16.11.2025, 12:35
Úlfur Arnar Jökulsson hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymi Kára og 2. flokks karla hjá ÍA.
FRÉTTIR16.11.2025, 11:46
Jordon Ibe, fyrrum vonarstjarna Liverpool, er búinn að skipta um félag. Hann er kominn til Búlgaríu þar sem hann mun leika fyrir Lokomotiv Sofia.
FRÉTTIR15.11.2025, 13:32
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur ákveðið að yfirgefa AB í Kaupmannahöfn af fjölskylduástæðum.
FRÉTTIR15.11.2025, 13:19
Stjórnendur AB Fodbold tjáðu sig um þjálfaraskiptin þar á bæ þar sem Jóhannes Karl Guðjónsson ákvað að yfirgefa félagið til að halda aftur heim til Íslands.
FRÉTTIR15.11.2025, 13:08
Fannar Berg Gunnólfsson hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari AB Fodbold sem vermir toppsæti þriðju efstu deildar danska boltans.
FRÉTTIR15.11.2025, 12:33
Jóhannes Karl Guðjónsson er hættur sem þjálfari danska liðsins AB eftir eitt og hálft ár í starfi. Í tilkynningu AB segir að hann sé að hætta vegna fjölskylduástæðna. Jóa Kalla er þakkað fyrir sín störf hjá félaginu.
Fannar Berg Gunnólfsson, sem var aðstoðarmaður Jóa Kalla, er nýr aðalþjálfari AB.
Jói Kalli er að flytja heim til Íslands og verður tilkynntur sem nýr þjálfari FH á næstunni. Hann er að taka við af Heimi Guðjónssyni sem stýrði FH síðustu þrjú tímabilin en fékk ekki nýjan samning í sumar og er tekin við Fylki.
FRÉTTIR14.11.2025, 20:35

Arnleifur Hjörleifsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Njarðvík og kemur hann til félagsins frá ÍA.

Arnleifur er 25 ára vinstri bakvörður sem lék á láni hjá Njarðvík í Lengjudeildinni á liðnu tímabili og var eftirsóttur af liðum í Bestu deild og Lengjudeildinni eftir að hafa rift samningi sínum við ÍA.

FRÉTTIR14.11.2025, 12:00
Diego Montiel hefur skrifað undir tveggja ára samning við KA en hann kemur á frjálsri sölu frá bikarmeisturum Vestra þar sem hann spilaði í sumar.
Montiel er þrítugur sóknarsinnaður miðjumaður, Svíi, sem hefur spilað í heimalandinu, í Belgíu og í Danmörku á sínum ferli.
Hann skoraði fimm mörk og lagði upp fimm í 32 leikjum með Vestra á tímabilinu. Montiel er annar leikmaðurinn sem KA fær í sínar raðir á síðustu vikum en Jakob Héðinn Róbertsson kom frá Völsungi fyrr í haust.
FRÉTTIR14.11.2025, 06:00
Kolbeinn Tumi Sveinsson hefur skrifað undir samning við Víking Ólafsvík og mun spila með liðinu næsta sumar.
Kolbeinn er tvítugur framherji og er uppaliinn á Akranesi. Hann gekk til liðs við Tindastól fyrir síðasta tímabil og fór hamförum í 3. deildinni og skoraði 16 mörk í 21 leik.
FRÉTTIR13.11.2025, 14:00
Patrick Bamford er genginn í raðir Sheffield United, hann skrifar undir samning sem gildir fram í janúar. Hann var án félags og getur því fengið leikheimild strax.
Bamford er 32 ára Englendingur sem yfirgaf Leeds eftir að félagið vann sér sæti í úrvalsdeildini í vor.
Hann hóf ferilinn hjá Nottingham Forest, fór næst til Chelsea og fór nokkrum sinnum þaðan á láni. Hann fór svo til Middlesbrough 2017 og svo til Leeds þar sem hann var 2018-25. Þar skoraði hann 60 mörk í 205 leikjum í öllum keppnum.
FRÉTTIR13.11.2025, 13:50

Roberto Mancini hefur skrifað undir þriggja ára samnig við katarska liðið Al-Sadd. Liðið situr í 6. sæti í efstu deild í Katar með 14 stig eftir níu leiki.

Mancini stýrði síðast sádi-arabíska landsliðinu, en hætti störfum á síðasta ári eftir slakt gengi.

FRÉTTIR12.11.2025, 20:17
Arna Sif Ásgrímsdóttir er komin aftur heim í Þór/KA en hún skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu félagsins.
FRÉTTIR12.11.2025, 14:44
Wolves tilkynnti í dag að Rob Edwards væri mættur aftur til félagsins en hann er nú tekinn við sem stjóri liðsins.
Hann tekur við liðinu af Vitor Pereira sem var látinn fara í síðustu viku eftir erfiða byrjun á tímabilinu en Wolves er á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Edwards kemur frá Middlesbrough en hann var þar á undan stjóri Luton, þar sem hann gerði frábæra hluti, og Forest Green Rovers sem hann kom einnig upp um deild. Hann hafði gert flotta hluti með Boro og margir setja spurningarmerki við að hann stökkvi frá því starfi.
Edwards skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Wolves. Hann er fyrrum leikmaður liðsins, spilaði á sínum tíma 111 leiki fyrir félagið og þekktastur fyrir að leika í hjarta varnarinnar undir stjórn Mick McCarthy. Hann var þjálfari U18 hjá Wolves árið 2014 og kom inn í þjálfarateymi aðalliðsins fljótlega eftir það. Þegar Walter Zenga var látinn fara árið 2016 stýrði hann tveimur leikjum til bráðabirgðar.
Fyrsti leikur Edwards sem stjóri Wolves verður gegn Crystal Palace um aðra helgi.
FRÉTTIR11.11.2025, 17:47
Eiður Aron Sigurbjörnsson er genginn til liðs við Njarðvík frá Vestra en hann skrifar undir eins árs samning.
Eiður Aron er 35 ára gamall varnarmaður. Hann gekk til liðs við Vestra frá uppeldisfélaginu sínu ÍBV í fyrra. Hann hefur einnig spilað með Val hér á landi. Hann spilaði með Örebro í Svíþjóð, Sandnes Ulf í Noregi og Holstein Kiel í Þýskalandi á atvinnumannaferlinum.