Chelsea opnar viðræður við Milan - Saliba í samningaviðræðum - Bellingham til Dortmund?
banner
banner
sunnudagur 11. maí
Besta-deild karla
Mjólkurbikar kvenna
miðvikudagur 7. maí
Lengjudeild kvenna
mánudagur 14. apríl
Besta-deild karla
laugardagur 12. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 11. apríl
Meistarar meistaranna konur
þriðjudagur 8. apríl
Þjóðadeild kvenna
laugardagur 5. apríl
Besta-deild karla
sunnudagur 11. maí
Úrvalsdeildin
Liverpool - Arsenal - 15:30
Man Utd - West Ham - 13:15
Newcastle - Chelsea - 11:00
Nott. Forest - Leicester - 13:15
Tottenham - Crystal Palace - 13:15
Bundesligan
Leverkusen - Dortmund - 13:30
Stuttgart - Augsburg - 17:30
Eintracht Frankfurt - St. Pauli - 15:30
Frauen
Freiburg W - Werder W - 12:00
Hoffenheim W - Carl Zeiss Jena W - 12:00
Koln W - Potsdam W - 12:00
Wolfsburg W - Bayer W - 12:00
RB Leipzig W - Eintracht Frankfurt W - 12:00
Bayern W - Essen W - 12:00
WORLD: International Friendlies
Dominica - Barbados - 20:00
Serie A
Verona - Lecce - 13:00
Napoli - Genoa - 18:45
Torino - Inter - 16:00
Udinese - Monza - 10:30
Eliteserien
SK Brann - Rosenborg - 12:30
Bryne - Molde - 15:00
KFUM Oslo - Tromso - 15:00
Kristiansund - Fredrikstad - 15:00
Sandefjord - Valerenga - 15:00
Sarpsborg - Ham-Kam - 15:00
Haugesund - Viking FK - 17:15
Úrvalsdeildin
Dinamo - Spartak - 16:30
Fakel - Lokomotiv - 13:30
Rubin - Rostov - 16:30
Akron - Akhmat Groznyi - 11:00
La Liga
Barcelona - Real Madrid - 14:15
Betis - Osasuna - 19:00
Athletic - Alaves - 16:30
Leganes - Espanyol - 12:00
Damallsvenskan - Women
Pitea W - Vaxjo W - 11:00
Hacken W - Brommapojkarna W - 13:00
Elitettan - Women
Uppsala W - Jitex W - 11:00
mið 03.jún 2020 17:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 3. sæti: Breiðablik

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Breiðablik muni enda í 3. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Blikar enda í 3. sæti samkvæmt spá okkar.

Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks.
Höskuldur Gunnlaugsson er fyrirliði Breiðabliks.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Elfar Freyr Helgason.
Varnarmaðurinn Elfar Freyr Helgason.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarinn Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Þjálfarinn Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Karl Einarsson.
Viktor Karl Einarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Ari Einarsson.
Anton Ari Einarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gísli Eyjólfsson.
Gísli Eyjólfsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. Breiðablik 108 stig
4. FH 95 stig
5. Víkingur R. 93 stig
6. Stjarnan
7. KA 55 stig
8. Fylkir 49 stig
9. ÍA 44 stig
10. HK 43 stig
11. Grótta 20 stig
12. Fjölnir 14 stig

Um liðið: Breiðablik hefur hafnað í öðru sæti Pepsi Max-deildarinnar síðustu tvö ár. Liðið var þó langt frá því að vinna Íslandsmeistaratitilinn í fyrra, KR vann með 14 stiga forskoti. Stjórn Blika ákvað að gera þjálfarabeytingar og Ágúst Gylfason var látinn fara.

Þjálfari - Óskar Hrafn Þorvaldsson: Einn umtalaðasti og áhugaverðasti þjálfari landsins. Eftir að hafa komið Gróttu upp um tvær deildir á tveimur árum er Óskar mættur á stóra sviðið sem þjálfari Breiðabliks. Hann var valinn þjálfari ársins í íslenskum íþróttum í fyrra og setur nú handbragð sitt á Kópavogsliðið. Halldór Árnason, sem var aðstoðarmaður hans á Seltjarnarnesi, fylgdi honum yfir.

Styrkleikar: Lið Breiðabliks er stútfullt af gæðum og leikgreind, þar eru leikmenn sem eiga oft auðvelt með að skapa marktækifæri. Fremstur er Daninn Thomas Mikkelsen sem er líklegur til að taka gullskóinn ef áætlanir ganga upp í Kópavogi. Í varnarlínunni eru Damir og Elfar Freyr sem mynduðu öflugustu vörn landsins 2018. Á pappírnum á Breiðablik nokkuð þægilega dagskrá í byrjun og möguleikar á að byrja sumarið á flugi.

Veikleikar: Óskar Hrafn er með skýra sýn á hvernig fótbolta hann vill sjá og kemur með nýja áherslu hjá liðinu. En hversu langt er liðið komið í að mótast eftir hans hugmyndum? Hléið sem kom vegna heimsfaraldursins gætu hafa hægt á þróuninni. Blikar voru gagnrýndir fyrir það í fyrra að missa hausinn þegar á móti blés og það er eitthvað sem þarf að lagast hjá liðinu.

Lykilmenn: Damir Muminovic og Thomas Mikkelsen. Damir er í hjarta varnarinnar en hann hefur verið algjör lykilmaður í liðinu undanfarin ár. Mikkelsen er refur í fremstu víglínu en hann er með 23 mörk í 31 leik í efstu deild í Breiðablikstreyjunni.

Gaman að fylgjast með: Anton Ari Einarsson er tekinn við sem aðalmarkvörður Breiðabliks af Gunnleifi Gunnleifssyni og mun vera í sviðsljósinu í sumar. Í uppleggi Óskars á markvörðurinn að taka virkan þátt í spilamennsku liðsins. Útlit er fyrir að Viktor Karl Einarsson verði í stærra hlutverki en í fyrra en þessi 23 ára miðjumaður var í unglingaliðum AZ Alkmaar og gæti sprungið út. Þá er Róbert Orri Þorkelsson spennandi leikmaður sem kom úr Mosfellsbænum.

Spurningarnar: Hvernig gengur Blikum í nýjum áherslum Óskars? Hvað skorar Thomas Mikkelsen mörg mörk? Verður Breiðablik með fullt hús eftir fjórar umferðir?

Völlurinn: Annað tímabil Breiðabliks á gervigrasinu á Kópavogsvelli. Stúkan tekur 1.700 áhorfendur í sæti og félagið hefur staðið sig vel í að gera flotta umgjörð í kringum leiki liðsins.

Fyrirliðinn segir - Höskuldur Gunnlaugsson
„Þessi spá kemur svo sem ekki á óvart. Það er alveg klárt að við ætlum okkur að gera atlögu að þeim stóra. Það var þokkalega hátt tempó í æfingaleiknum gegn Val og það kom skemmtilega á óvart. Miðað við hlaupatölurnar erum við ekki langt á eftir þrátt fyrir allar þessa vikur án þess að spila. Það þarf aðeins að fínpússa taktinn í uppspilinu og í stöðum á vellinum. Það er annar alvöru æfingaleikur gegn HK á sunnudaginn og við ættum að koma í fínasta leikformi inn í mót miðað við aðstæður. Það er gríðarlega mikil tilhlökkun fyrir tímabilinu."

Komnir:
Anton Ari Einarsson frá Val
Brynjar Atli Bragason frá Njarðvík
Kwame Quee frá Víkingi R. (Var á láni)
Kristinn Steindórsson frá FH
Oliver Sigurjónsson frá Bodö/Glimt
Róbert Orri Þorkelsson frá Aftureldingu

Farnir:
Alfons Sampsted í Norrköping (Var á láni)
Guðmundur Böðvar Guðjónsson
Ólafur Íshólm Ólafsson í Fram
Þórir Guðjónsson í Fram
Hlynur Örn Hlöðversson

Fyrstu fimm leikir Breiðabliks:
14. júní Breiðablik - Grótta
21. júní Fylkir - Breiðablik
29. júní Breiðablik - Fjölnir
5. júlí KA - Breiðablik
8. júlí Breiðablik - FH

Sjá einnig:
Hin hliðin - Brynjólfur Willumsson
Hin hliðin - Róbert Orri Þorkelsson

Leikmenn Breiðabliks sumarið 2020:
1 Gunnleifur Gunnleifsson
12 Anton Ari Einarsson
3 Oliver Sigurjónsson
4 Damir Muminovic
5 Elfar Freyr Helgason
6 Alexander Helgi Sigurðarson
7 Höskuldur Gunnlaugsson
8 Viktor Karl Einarsson
9 Thomas Michaelsen
10 Guðjón Pétur Lýðsson
11 Gísli Eyjólfsson
16 Róbert Orri Þorkelsson
18 Arnar Sveinn Geirsson
20 Kristinn Steindórsson
21 Viktor Örn Margeirsson
23 Stefán Ingi Sigurðarson
25 Davíð Ingvarsson
30 Andri Yeoman
31 Benedikt V Warén
45 Brynjólfur Andersen Willumsson
62 Ólafur Guðmundsson
77 Kwame Quee

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Benedikt Bóas Hinriksson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir