10.11.26 - 10:08
Kári Snorrason
Orri orðlaus yfir systur sinni

Saman á Þróttaravelli fyrir rúmu ári síðan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilaði sinn fyrsta landsleik í síðasta mánuði.

Mynd: KSÍ

Orðlaus yfir systur sinni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Emelía Óskarsdóttir hefur farið mikinn með danska meistaraliðinu HB Köge á tímabilinu. Hún hefur skorað átta mörk í ellefu leikjum á tímabilinu.
Hún sleit krossband fyrir tveimur árum og var frá keppni í rúmt ár. Emelía, sem er tvítug, hefur stigið vel upp eftir meiðslin og spilaði hún í síðasta mánuði sinn fyrsta A-landsleik.
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er bróðir Emelíu en hann var spurður út í systur sína í viðtali við Fótbolta.net í gær.

TENGT EFNI
Frá árs fjarveru í íslenska landsliðið - „Tíminn líður ekkert eðlilega hægt“
„Ég er mjög glaður að þú spurðir. Ég er orðlaus yfir henni. Hún verður bara betri og betri með hverjum leiknum og að sjá hana koma inn í landsliðið með með krafti. Það er erfitt að koma inn í landsliðið sem ungur leikmaður, ég þekki það.
Maður þarf einhvern veginn að láta finna fyrir sér frá fyrsta degi. Mér fannst hún koma mjög vel inn í leikinn og ég er bara mjög stoltur af henni, hvernig hún er búin að díla við allt mótlætið og hvernig hún er búin að stíga upp sem leikmaður og karakter,“ sagði Orri sem var í kjölfarið spurður hversu vel hann fylgist með Emelíu.
„Það er svolítið erfitt að finna leikina hennar. Pabbi var í heimsókn um daginn, hann er alltaf með leikina þannig að við vorum að horfa á þetta saman. Það er bara geggjað að geta fylgst með henni á svona háu stigi. Danska deildin er mjög sterk í kvennaboltanum og á HB Köge spilaði í Meistaradeildinni um daginn á móti Barcelona.
Það er bara frábær upplifun fyrir hana að spila á móti bestu leikmönnum í heiminum. Það er svona eitthvað sem maður ætti bara að mæla sig við. Ég held að hún hefur alla burði til að vera bara einn besti leikmaður í heiminum í framtíðinni, án þess að setja of mikla pressu en ég hef mjög mikla trú á henni,“ sagði Orri að lokum.