Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. desember 2019 09:27
Magnús Már Einarsson
Haukur í fjögurra leikja bann fyrir skókastið
Haukur í leik með Víkingi árið 2015.
Haukur í leik með Víkingi árið 2015.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur dæmt Hauk Baldvinsson, leikmann Augnabliks, í fjögurra lekja bann eftir rauða spjaldið sem hann fékk í leik gegn Hvíta Riddaranum í íslandsmótinu innanhúss fyrr í þessum mánuði.

Atvikið átti sér stað á 17. mínútu leiksins. Haukur var ósáttur við að fá ekki aukaspyrnu á miðjum vellinum, snöggreiddist, fór úr skónum og grýtti honum af alefli í Ólaf Inga Guðmundsson aðstoðardómara sem sat þar við tölvu á ritaraborðinu.

Það varð Ólafi Inga til happs að tölvuskjár varð á milli þegar Haukur grýtti skónum svo honum varð ekki harmur af.

Sjá einnig:
Myndband: Haukur Baldvins fór úr skónum og grýtti í dómarann

Af vef KSÍ
Á fundi aga- og úrskurðarnefndar þann 17. desember var leikmaður Augnabliks, Haukur Baldvinsson, úrskurðaður í fjögurra leikja bann vegna atviks í leik Augnabliks og Hvíta Riddarans í Íslandsmótinu innanhúss þann 7. desember.

Með hliðsjón af öðrum fyrirliggjandi gögnum ákvað nefndin, með vísan til ákvæðis 6.1.1. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál, að úrskurða Hauk Baldvinsson, leikmann Augnabliks, í samtals fjögurra leikja bann vegna atvika sem lýst er í skýrslu dómara í leik Augnabliks og Hvíta Riddarans þann 7. desember sl., samkvæmt 13. gr. sömu reglugerðar. Leikbann Hauks Baldvinssonar tekur gildi við uppkvaðningu úrskurðar.
Athugasemdir
banner
banner