Fotbolti.net
29.11.26 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu sturlað mark Sigurðs Bjarts á Spáni - „Við erum orðlaus!“

Sjáðu sturlað mark Sigurðs Bjarts á Spáni - „Við erum orðlaus!“
Canon

Mynd: AD Merida

Sigurður Bjartur Hallsson skoraði eitt glæsilegasta mark tímabilsins í spænsku C-deildinni þegar Merida gerði 1-1 jafntefli við Racing Club Ferrol í dag.
Framherjinn er á sínu öðru tímabili hjá Merida eftir að hafa komið frá FH í byrjun ársins og hefur nú skorað fimm mörk á tímabilinu.

Það fimmta var af dýrari gerðinni, en Sigurður skoraði algjörlega stórbrotið mark eftir aðeins fimm mínútna leik í 14. umferð deildarinnar í dag.

Fyrirgjöf kom frá hægri inn í vítateiginn þar sem Sigurður kastaði sér í glæsilega bakfallsspyrnu, smellhitti boltann og þrumaði honum í netið.

„Við erum orðlaus. Njótið bara þessarar svakalegu neglu,“ segir í X-færslu deildarinnar en Merida er í 6. sæti A-riðils með 21 stig eftir fjórtán leiki.

Markið má sjá hér fyrir neðan, en sjón er sögu ríkari.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.