| þri 21.apr 2026 16:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 4. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Stjarnan muni enda í fjórða sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Stjarnan verður í efri hlutanum ef spáin rætist.
Óskar Smári tók við Stjörnunni í vetur, er mættur aftur í Garðabæinn.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. ?
2. ?
3. ?
4. Stjarnan, 70 stig
5. Þróttur R., 69 stig
6. Valur, 61 stig
7. Þór/KA, 43 stig
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig
Um liðið: Stjarnan fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með ákveðna eftirvæntingu og von um gott sumar. Liðinu er spáð 4. sæti, sem setur þær í hóp þeirra liða sem eiga að vera í baráttunni rétt fyrir neðan toppinn, en hver veit ef hlutirnir smella fullkomlega? Nýr þjálfari er kominn til starfa sem gæti fært liðinu ferskleika og nýja nálgun, eitthvað sem Stjarnan þurfti mögulega. Undirbúningstímabilið hefur verið upp og niður, sem gerir það að verkum að erfitt er að lesa nákvæmlega hvar liðið stendur þegar mótið hefst. Hins vegar eru gæðin til staðar og þegar Stjarnan nær flugi hefur liðið sýnt að það getur keppt við þau bestu. Spurningin verður hversu fljótt nýjar áherslur skila sér inn á völlinn. Það eru orðin nokkur ár síðan Stjarnan sat á toppi íslenska kvennaboltans og margt hefur breyst síðan þá, bæði innan félagsins og í deildinni sjálfri. Draumurinn um að komast aftur á þann stað er vonandi til staðar.
Þjálfarinn: Óskar Smári Haraldsson var í vetur ráðinn til starfa í Garðabænum eftir að hafa stýrt Fram síðustu ár með eftirtektarverðum árangri. Óskar þekkir hvern krók og kima í Garðabænum þar sem hann þjálfaði yngri flokka félagsin frá árinu 2018 til ársins 2020. Þá var hann partur af teymi meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni árið 2020 þegar liðið var undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar. Í leikmannakönnun fyrir mót voru leikmenn spurðir undir hvaða þjálfara þeir vildu helst spila og þar bar Óskar sigur úr býtum enda er hann mjög skemmtilegur og líflegur karakter.
Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hveitibrauðsdagarnir eru búnir
„Eftir rómantíska endurkomu Óskars Smára i Garðabæinn er alvaran handan við hornið. Stjarnan hélt kjarnanum og bætti við sig sterkum leikmönnum á undirbúningstímabilinu en úrslitin og spilamennskan ekki upp á marga fiska."
„Liðinu gengur erfiðlega að skora mörk og varnarleikurinn lekið í síðustu leikjum. Það eru rosaleg einstaklings gæði í Úlfu Dís og Fanney Lísu sem er sá leikmaður sem ég tel að gæti átt framúrskarandi tímabil."
„Ef Stjarnan ætlar sér að eiga draumatímabil þurfa leikmenn og þjálfarar að róa í sömu átt en hættan er að gömlu draugarnir í klefanum sé vaknaðir með hækkandi sólu."
Lykilmenn: Anna María Baldursdóttir og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Anna María hefur ótrúlega lengi verið lykilmaður fyrir Stjörnuna. Hún er fyrirliðinn í Garðabænum og andlit liðsins út á við. Hún er stórkostlegur karkater og þær geta alltaf treyst á hana innan sem utan vallar. Frábær leiðtogi að hafa í sínu liði og einn besti miðvörður deildarinnar. Svo telja margir að Úlfa Dís verði einn besti leikmaður deildarinnar, ef ekki bara sá allra besti. Hún hefur alla burði til að vera einn besti framherjinn í þessari deild en vantar kannski að finna aðeins meiri stöðugleika í sínum leik. Hún verður samningslaus eftir tímabilið og Stjarnan mun væntanlega gera allt sem í sínu valdi stendur til að halda henni.
Gaman að fylgjast með: Fanney Lísa Jóhannesdóttir
Fanney Lísa er klárlega leikmaður sem gæti sprungið út í sumar. Hún hefur verið í lykilhlutverki í yngri landsliðum Íslands og er mjög svo efnilegur leikmaður. Hún endursamdi við Stjörnuna eftir síðasta tímabil þrátt fyrir áhuga frá Val og einnig erlendis frá. Í fyrra spilaði hún 21 leik í Bestu deildinni og skoraði í þeim eitt mark, en það er spurning hvort mörkin verði ekki fleiri í sumar.
Komnar:
Murielle Tiernan frá Fram
Telma Steindórsdóttir frá Fram
Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið frá Breiðabliki (var á láni)
Farnar:
Betsy Hassett hætt
Vera Varis
Esther Rós Arnarsdóttir
Henríetta Ágústsdóttir í HK (var á láni hjá Þór/KA)
Fyrstu fimm leikir Stjörnunnar:
24. apríl, Víkingur R. - Stjarnan (Víkingsvöllur)
29. apríl, Stjarnan - Valur (Samsungvöllurinn)
6. maí, Þór/KA - Stjarnan (Þórsvöllur)
10. maí, Stjarnan - FH (Samsungvöllurinn)
20. maí, Grindavík/Njarðvík - Stjarnan (JBÓ völlurinn)
Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.



