Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
föstudagur 24. apríl
Lengjudeild karla
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
fimmtudagur 23. apríl
Bikarkeppni
Stuttgart - Freiburg - 18:45
Vináttuleikur
Spain U-17 2 - 1 Ukraine U-17
La Liga
Oviedo - Villarreal - 19:30
Levante - Sevilla - 17:00
Vallecano - Espanyol - 18:00
fim 23.apr 2026 10:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 3. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Víkingur muni enda í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Víkingur mun eiga gott sumar ef spáin rætist.

Fyrir leik hjá Víkingi á síðasta tímabili.
Fyrir leik hjá Víkingi á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Guðnason, þjálfari Víkings.
Einar Guðnason, þjálfari Víkings.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áslaug Dóra þarf að stíga upp.
Áslaug Dóra þarf að stíga upp.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bergdís er í lykilhlutverki.
Bergdís er í lykilhlutverki.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyja er mjög efnilegur leikmaður.
Freyja er mjög efnilegur leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Linda Líf fór út í atvinnumennsku.
Linda Líf fór út í atvinnumennsku.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grace McClellan verður í markinu hjá Víkingi í sumar.
Grace McClellan verður í markinu hjá Víkingi í sumar.
Mynd/Víkingur
Selma Dögg og Erna Guðrún endursömu við Víking á dögunum en þær eru báðar að koma til baka eftir barnsburð.
Selma Dögg og Erna Guðrún endursömu við Víking á dögunum en þær eru báðar að koma til baka eftir barnsburð.
Mynd/Víkingur R:
Bergþóra Sól er öflugur leikmaður.
Bergþóra Sól er öflugur leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jasmín er mætt í Víkina.
Jasmín er mætt í Víkina.
Mynd/Víkingur R.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. Víkingur R., 74 stig
4. Stjarnan, 70 stig
5. Þróttur R., 69 stig
6. Valur, 61 stig
7. Þór/KA, 43 stig
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig

Um liðið: Víkingur fer inn í nýtt tímabil í Bestu deildinni með háar væntingar eftir mikinn uppgang síðustu ár. Liðinu er spáð 3. sæti en á undanförnum tímabilum hefur Víkingur byggt sig hratt upp, meðal annars með bikarmeistaratitli. Síðasta tímabil var þó áminning um að leiðin upp á topp er sjaldnast bein lína. Byrjunin var erfið og úrslitin ekki í takt við væntingar, sem leiddi til þjálfaraskipta snemma sumars. Sú breyting skilaði sér hins vegar í betri frammistöðu og liðið náði að rétta úr kútnum og enda í efri hlutanum. Víkingur er ekki lengur liðið sem kemur á óvart, heldur liðið sem ætlar sér að berjast um þann stóra. Spurningin er hvort þeim takist að ná stöðugleika frá fyrsta leik og forðast þær sveiflur sem settu strik í reikninginn í fyrra. Ef þær ná því og byggja ofan á þann grunn sem hefur verið lagður síðustu ár, gæti Víkingur verið raunverulegur kandídat í Íslandsmeistaratitilinn.

Þjálfarinn: Einar Guðnason tók við keflinu af John Andrews eftir erfiða byrjun á síðasta tímabil. John hafði náð mögnuðum árangri í Víkinni, byggt upp öflugt lið sem varð bikarmeistari og komst upp í Bestu deildina. Núna á Einar að byggja ofan á það. Einar hefur verið búsettur í Svíþjóð undanfarin ár en hann var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingi áður en hann hélt út. Einar hafði sinnt flestum hlutverkum hjá Víking áður en hann hélt til Svíþjóðar árið 2021. Hann spilaði upp alla yngri flokkana, var leikmaður í meistaraflokki, þjálfari yngri flokka, yfirþjálfari barna- og unglingaráðs og síðast aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Í Svíþjóð hafði Einar sinnt starfi „transition“ þjálfara hjá Örebro þar sem hann aðstoðaði leikmenn að taka skrefið úr akademíu og inn í aðalliðið ásamt því að þjálfa U19 lið kvenna. Einar er með gríðarlega stórt Víkingshjarta og er með mikinn metnað fyrir félaginu.

Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Er ferskleikinn til staðar og er skarð Lindu Líf of stórt?
„Einar Guðna kom inn með stormi á síðasta tímabili gerði nauðsynlegar breytingar og liðið varð alltaf betra og betra."

„Linda Líf er farin til Sviþjóðar og verður fróðlegt sjá hvernig hennar skarð verður fyllt og svo er það varnarleikurinn en Gígja Valgerður er farin úr vörninni og er það mögulega stærsta skarðið sem Einar þarf að fylla."

„Ef Jasmín nennir getur hún orðið nýi uppáhaldsleikmaður Hamingjunnar og heil Freyja Stefáns ætti að fá áhorfendur til að rísa úr sætum."

„Bergdís er með lyklana af hamingju vagninum og það er aldrei að vita nema Black Sabbath hljómi um Fossvoginn í lok tímabils."


Lykilmenn: Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Bergdís Sveinsdóttir
Áslaug Dóra kom heim fyrir tímabilið í fyrra og átti rispur, en heilt yfir fann hún sig ekki alveg nægilega vel. Hún mun fá enn stærra hlutverk í sumar þar sem Gígja Valgerður Harðardóttir er farin frá félaginu og Erna Guðrún Magnúsdóttir er að koma til baka eftir barnsburð. Áslaug Dóra hefur alla burði til að vera einn besti varnarmaður deildarinnar ef allt smellur hjá henni. Annar leikmaður sem mun taka stærra hlutverk í sumar er Bergdís Sveinsdóttir á miðsvæðinu hjá Víkingum. Bergdís er gríðarlega kraftmikill leikmaður sem drífur liðið áfram með elju og vinnusemi. Hún er mjög þroskaður einstaklingur þrátt fyrir ungan aldur og er sterkur liðsfélagi.

Gaman að fylgjast með: Freyja Stefánsdóttir
Þetta gæti verið tímabilið þar sem Freyja mun gjörsamlega springa út. Hún var nýverið hluti af U19 landsliðinu sem komst inn í lokakeppni Evrópumótsins. Freyja, sem spilar oftast á kantinum, er orðin mjög reynslumikil þrátt fyrir ungan aldur en hún náði ekki að skora í Bestu deildinni síðasta sumar. Mörkin munu pottþétt koma í sumar hjá þessum spennandi leikmanni og það er vert að fylgjast með henni.

Komnar:
Helena Ósk Hálfdánardóttir frá Val
Jasmín Erla Ingadóttir frá Val
Grace McClellan frá Finnlandi
Elísa Birta Káradóttir frá HK
Þórhildur Þórhallsdóttir frá Fylki
Camilly Kristal Silva Da Rocha frá Þrótti
Hrafnhildur Hjaltalín frá Aftureldingu

Farnar:
Linda Líf Boama til Kristianstad
Gígja Valgerður Harðardóttir
Eva Ýr Helgadóttir hætt
Ashley Clark til Montpellier
Júlía Ruth Thasaphong til Grindavíkur/Njarðvíkur



Fyrstu fimm leikir Víkings:
24. apríl, Víkingur R. - Stjarnan (Víkingsvöllur)
30. apríl, ÍBV - Víkingur R. (Hásteinsvöllur)
6. maí, Víkingur R. - Breiðablik (Víkingsvöllur)
11. maí, Fram - Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)
19. maí, Víkingur R. - Þróttur R. (Víkingsvöllur)

Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
banner