Lárus Orri eftir dramatískt jafntefli: Hlaupum með það upp á Skaga
„Við komums aldrei í almennilegan takt í þessum leik. Valsararnir voru góðir og kannski betri en við heilt yfir í þessum leik. Þeir voru að gefa okkur tækifæri á góðum upphlaupum, ef og hefði, við hefðum getað nýtt okkur þessi upphlaup betur í fyrri hálfleik og þá hefði seinni hálfleikurinn verið öðruvísi. En ég held að Valur var betri en við í kvöld, frammistaðan okkar var ekki alveg nógu góð.“ sagði Lárus Orri, þjálfari Skagamanna, eftir 2-2 jafntefli gegn Valsmönnum á Hlíðarenda.