Fotbolti.net
30.08.26 - 22:26
Sölvi Haraldsson

Jónatan Ingi: Slæsaði hann eins og maður á til að gera í golfinu

Auglýsing
Jónatan Ingi: Slæsaði hann eins og maður á til að gera í golfinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er bæði svekkjandi úr því sem komið var og líka að mér fannst við vera betri fyrir utan fyrstu 10 mínúturnar. Auðvitað áttu þeir einhverja kafla og við einhverja kafla en heilt yfir fannst mér við eiga töluvert fleiri hættulegri færi.“ sagði Jónatan Ingi, leikmaður Vals, eftir 2-2 jafntefli gegn ÍA í kvöld á Hlíðarenda.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 ÍA
Valsmenn fengu urmul af góðum færum í dag sem fóru forgörðum en skoruðu tvö mörk af dýrari gerðinni.

„Þetta voru það, auðvitað hefði ég viljað skora fleiri. Hann fer einu sinni í stöngina og hann ver hann upp í slá og Kristó fær færi líka og fleiri en það er bara stundum svona þegar maður er að eiga tímabil eins og við erum að eiga að þá þarf stundum meira til fyrir þrjú stig en vanalega það var því miður raunin í dag.“

Jónatan skoraði stórglæsilegt mark í seinni hálfleik og kom Val í 2-1. En spurningin er hvort Jónatan hafi verið að reyna að skora?

„Nei ég heyrði í Dag góla og ég slæsaði hann eins og maður á það til að gera í golfinu“

Gestirnir jöfnuðu undir blálokin þegar skammt var eftir af leiknum.

„Ég hélt að þetta væri komið hérna undir lokin þegar við fáum markspyrnu. Ég vil ekki vera að benda á aðra en mér fannst línan ekki vera þannig að Elías (dómari leiksins) væri að fara að taka af okkur einhverja markspyrnu og breyta henni í horn miðað við hvernig Árni var búinn að haga sér hérna allan leikinn og þeir búnir að taka tíma í allt. Mér fannst mjög skrítin lína þá að fara að dæma einhverja hornspyrnu en burt séð frá því eigum við að geta varist hornspyrnum.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.