30.08.26 - 22:26
Sölvi Haraldsson
Lárus Orri eftir dramatískt jafntefli: Hlaupum með það upp á Skaga
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við komums aldrei í almennilegan takt í þessum leik. Valsararnir voru góðir og kannski betri en við heilt yfir í þessum leik. Þeir voru að gefa okkur tækifæri á góðum upphlaupum, ef og hefði, við hefðum getað nýtt okkur þessi upphlaup betur í fyrri hálfleik og þá hefði seinni hálfleikurinn verið öðruvísi. En ég held að Valur var betri en við í kvöld, frammistaðan okkar var ekki alveg nógu góð.“ sagði Lárus Orri, þjálfari Skagamanna, eftir 2-2 jafntefli gegn Valsmönnum á Hlíðarenda.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 ÍA
„Ég er ánægður með stigið úr því sem komið var og ef ég tek mark á frammistöðunni, hún var ekki góð hjá okkur í dag. Mörkin sem þeir skora á endanum var skot fyrir utan teig og hitt markið var bara eitthvað flúk. En heilt yfir vorum við ekki nógu góðir og Valsmenn voru bara heilt yfir betri en við í kvöld. En þetta er í fyrsta skipti í sumar sem við stelum stigi og við tökum það og hlaupum með það upp á Skaga.“
Árni Marinó var að kveinka sér í leiknum og þurfi einu sinni aðhlynningu, hver er staðan á honum?
„Hann var besti maðurinn okkar á vellinum í dag og stóð sig gífurlega vel en hann hefur verið í veseni með ökklann á sér. Hann hefur núna viku til að jafna sig fyrir næsta leik og ég held að hann nái því. Núna er náttúrulega Jón Sölvi seldur en hann fer út á morgun, Árni verður klár í næsta leik.“
Hvernig horfir þessi barátta við Lárusi um 6. sætið en stigið í dag skipti miklu máli í þeirri baráttu.
„Ég veit það ekki. Stjarnan á eftir að spila, þeir spila á morgun og geta jafnað okkur held ég. Núna verður þetta bara þannig að við verðum að vinna KR heima. Þetta stig skiptir okkur miklu máli því ef við hefðum ekki jafnað hefðu Valsarar jafnað okkur á stigum, held ég. Við tökum þetta stig og förum og undirbúum okkur fyrir KR leikinn.“ sagði Láru Orri að lokum.