Fotbolti.net
30.08.26 - 19:53
Stefán Marteinn Ólafsson

Haraldur Freyr: Náum ekki að tengja mikið af sendingum og erum bara lélegir

Auglýsing
Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH vann gríðarlega mikilvægan sigur á Keflavík í dag þegar liðin áttust við á Kaplakrikavelli í 21. umferð Bestu deild karla. 
Lestu um leikinn: FH 2 - 1 Keflavík

„Ágætis fyrri hálfleikur hjá okkur, seinni hálfleikurinn ekki góður" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir tapið í dag. 

„Sérstaklega eftir að við lendum undir þá er mikið af feil sendingum og við náum ekki að tengja mikið af sendingum og erum bara lélegir" 

Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en FH tók öll völd í seinni hálfleik. 

„Það breytist kannski ekkert voðalega mikið. Þeir ná að komast inn í leikinn og þeirra leikur vex en svo eftir að þeir komast yfir þá gerðu þeir svo sem ekkert mikið í leiknum eftir það en verjast vel og við fáum einhverja sénsa til þess að jafna en það gekk ekki upp" 

Haraldur Freyr vildi ekki meina að það hafi verið mikill munur á liðunum heilt yfir í dag.

„Mér fannst ekkert vera svakalega mikill munur á þessum liðum. Þetta voru tvö jöfn lið sem að voru að eigast hérna við í dag og þeir vinna 2-1 í frekar lokuðum leik" 

Nánar er rætt við Harald Freyr Guðmundsson þjálfara Keflavíkur í spilaranum hér fyrir ofan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA20-1416
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.