Ásdís Karen á leið til Svíþjóðar


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á leiðinni til Svíþjóðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þegar mark koma í lokin, þú veist. Maður hefur verið hinum megin við borðið og skorað sigurmark í lokin líka. Við fengum á okkur núna og svona er fótbolti, maður tekur þessu eins og öllu öðru."
Guðni fannst FH eiga skilið að vinna.
„Klárlega, við gáfum ekki mörg færi á okkur, klárlega. En þetta er bara svona. Þetta er fylgifiskur þess að spila þétt, við vorum í mjög erfiðu prógrammi á Kýpur fyrir örfáum dögum síðan, gríðarlega langt ferðalag. Það sást í lok leiks að, síðasta korterið að leikmenn FH liðsins voru þreyttir og það er bara eðlilegt. Það þarf ekkert að kryfja það að við höfum fengið á okkur mark í blálokin, ekkert sérstaklega. Þetta er bara þreyta leikmanna sem spilar stóra rullu þar inn í."
„Ferðalagið heim tók eitthverjar fimmtán klukkustundir. Þetta er bara tough, en við viljum vera í þessari stöðu. Það er fylgifiskur þess að ferðast langt og spila við krefjandi aðstæður þarna ytra."
Ásdís Karen var ekki í leikmannahópi FH í dag. Af hverju?
„Hún er að fara til Svíþjóðar að öllum líkindum. Það er bara flott, enn einn leikmaður FH liðsins sem fer út. Við sýnum það consistently að við sendum leikmenn erlendis."
Ída Marín fór frá FH í mánuðinum. Er Guðni svekktur að fá ekki annan leikmann í staðinn fyrir hana?
„Nei nei, alls ekki. Markaðurinn var alveg skoðaður og svo framvegis. Það er ekki mikið í boði, það er alveg klárt mál að stefna FH liðsins sé mjög skýr. Við erum að þróa unga leikmenn, við erum að byggja liðið á ungum leikmönnum og við erum síðan að selja leikmenn út. Þetta er bara skýr stefna liðsins, þannig að við erum ánægðir með þetta. Við erum að spila á gríðarlega ungu liði, yngsta liðið í deildinni, þannig viljum við hafa þetta. FH er þróunarklúbbur fyrir unga leikmenn og stökkpallur til þess að komast erlendis."

Á leiðinni til Svíþjóðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
