Ísak Óli: Höfum alltaf rifist rosa mikið, líka þegar við vorum saman í liði

Ísak Óli Ólafsson mætti uppeldisfélaginu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak Óli Ólafsson mætti uppeldisfélaginu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH vann gríðarlega mikilvægan sigur á Keflavík í dag þegar liðin áttust við á Kaplakrikavelli í 21. umferð Bestu deild karla.
„Hrikalega sætt" sagði Ísak Óli Ólafsson fyrirliði FH eftir sigurinn í dag.
„Mér fannst við ekkert spes í fyrri en þeir voru ekkert að skapa sér svo mikið en við vorum ekki að stíga upp í mennina og þeir voru svolítið að dóminera án bolta fannst mér útaf einmitt því en við löguðum það og bara flottur seinni og við dóminerum leikinn og mér fannst þeir ekki gera neitt í seinni"
FH voru mun betri aðilinn í seinni hálfleiknum eftir jafnræði í þeim fyrri.
„Við fórum vel yfir þetta í hálfleik. Menn voru smá pirraðir og það vantaði eitthvað. Jói sýndi klippur inni í hálfleik og þetta var bara örlitlar breytingar á nokkrum smáatriðum og þá vorum við bara ofan á allan tímann"
Ísak Óli og Stefan Ljubicic áttu í áhugaverði baráttu í leiknum en þeir þekkjast vel úr Keflavík.
„Ég og Stebbi ólumst eiginlega bara upp saman. Hann er einu ári eldri en ég og ég var alltaf að spila með þeim og pabbi hans var að þjálfa okkur þannig ég og Stebbi höfum alltaf þekkst og þvílíkur leikmaður sem er búin að bæta sig þvílíkt á þessu tímabili"
„Algjört unit og skemmtilegt að tveir svona turnar séu að slást og það er bara alltaf gaman að mæta svona góðum leikmönnum eins og honum"
„Ég held að ég og Stebbi höfum alltaf rifist rosa mikið líka þegar við vorum saman í liði. Þetta eru bara tveir karakterar sem að eru að kljást einhvernveginn alltaf" sagði Ísak Óli Ólafsson.
Nánar er rætt við Ísak Óla Ólafsson fyrirliða FH í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 20 | -14 | 16 |
