30.08.26 - 21:15
Magnús Atlason
Eiður Smári: Held ég sé bara fínasta viðbót
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA sótti dýrmætt stig á útivelli gegn toppbaráttuliði Fram þegar liðin gerðu 2-2 jafntefli. Fótbolti.net náði tali af Eiði Smára Guðjohnsen, aðstoðarþjálfara KA, eftir leik.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 2 KA
"Aðeins blendnar tilfinningar, við hefðum náttúrulega viljað fara heim með þrjú stig. Mér fannst við hafa góða stjórn á leiknum á stórum köflum."
KA misstu tvo menn í meiðsli í fyrri hálfleik. "Hafði það einhver áhrif á það hvernig leikurinn spilaðist fyrir ykkur?"
"Nei ekki í rauninni áhrif á hvernig við vildum spila sjálfir og hvernig við myndum reyna að yfirmanna ákveðin svæði og reyna að halda ró á boltanum þegar við unnum hann til baka. En auðvitað að gera tvær breytingar á fyrstu 20 mínútunum, maður kýs það ekki."
Hvernig er hlutverkaskiptingin í þjálfarateymi KA?
"Ég og Haddi erum bara með þetta saman. Ég kem með nýjungar inn á æfingasvæðið, hvort sem það séu nýjar æfingar, ný rödd líka, aðeins öðruvísi sýn á fótbolta.
"Það var stórt atriði fyrir mig að Haddi yrði áfram því að ég held að breytingin hafi verið það mikil og verkefnið of stórt og of mikið hefði ég verið einn í þessu hlutverki. Ég þurfti alltaf mann sem þekkir karakterinn á leikmönnum, sem þekkir til, eru með KA hjartað og svo held ég að ég sé bara fínasta viðbót."
KA fær Breiðablik í heimsókn í síðustu umferð fyrir skiptingu. Þetta er þriðji leikur KA í röð gegn liðum í topp 4 í deildinni þegar þetta er skrifað. Eiður fær ekki auðveldustu leikina til þess að byrja með.
"Það eru engir auðveldir leikir í fótbolta þannig að það þurfa allir alltaf að spila á móti öllum sem er bara fínt til að sjá hvar við stöndum á móti sterkari liðum. Fram deilir öðru sætinu með KR sem sýnir styrkleikann hér hjá þessu liði. Breiðablik er að fara í bikarúrslitaleik þannig að þetta eru allt góð lið."
Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.