Daníel Leó: Enn að toppa mig með hverju árinu
„Ég er mjög spenntur fyrir þessum glugga. Við ætlum að sýna okkar rétta andlit og hvað við höfum unnið að í síðustu gluggum," segir Daníel Leó Grétarsson, lykilmaður í vörn íslenska landsliðsins.
Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvellu á laugardag í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
„Þetta er lengri gluggi en vanalega, þéttari pakki, og skiptist á heima- og útileikjum svo þetta eru smá ferðalög. Menn þurf að nýta sér nuddarana til að halda sér í góðu standi. Það má búast við því að mínúturnar dreifist meira og allir verða að vera klárir að hjálpa til."
„Við erum hæstir á heimslistanum af liðum riðilsins. Við verðum að sýna það að við eigum heima ofar. Taflan lýgur ekkert og við þurfum að fá úrslitin.