Fyrirliðinn trúir á FH í Þýskalandi: „Við getum allt“

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir var gríðarlega stolt af FH-liðinu eftir naumt tap gegn stórliði Frankfurt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir var gríðarlega stolt af FH-liðinu eftir naumt tap gegn stórliði Frankfurt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, fyrirliði FH, var bæði vonsvikin og stolt eftir naumt 0-1 tap gegn þýska stórliðinu Eintracht Frankfurt í Kaplakrika í dag.
FH veitti einu sterkasta liði Evrópubikarsins harða mótspyrnu og vítaspyrnu þurfti til að skilja liðin að. Andrea viðurkenndi að tilfinningarnar væru blendnar eftir leik.
„Fyrsta tilfinningin eru ákveðin vonbrigði miðað við hvernig leikurinn spilaðist. Þetta var ógeðslega vel gert hjá okkur en á sama tíma er ég ógeðslega stolt. Þetta er mjög skrítin tilfinning.“
FH-liðið lagði mikla áherslu á einföldu atriðin í leik sínum og fyrirliðinn var ánægð með hvernig leikmenn liðsins fylgdu leikplaninu.
„Við vissum að grunnatriðin í fótbolta myndu skipta máli í dag og mér fannst við gera þau ógeðslega vel. Við vorum grjótharðar í öllum stöðum. Það snerist um að mæta og klára þessi grunnatriði sem skipta svo miklu máli í fótbolta.“
Frammistaðan gegn stórstjörnum Frankfurt sýndi að mati Andreu hvers FH-liðið er megnugt þegar samstaðan og trúin eru til staðar.
„Við getum allt ef við höfum nógu mikla trú og við vorum með hana í dag. Mér fannst við bakka hver aðra ógeðslega vel upp og spila hver fyrir aðra. Það skiptir svo miklu máli.“
FH er í harðri titilbaráttu í Bestu deildinni samhliða Evrópuævintýrinu en Andrea segir leikmenn njóta þess að fá að takast á við ólík verkefni.
„Þetta er bara skemmtilegt. Við getum blandað þessu upp og einbeitt okkur að einu verkefni í einu. Við fáum að fara til Þýskalands í næstu viku og það er bara gaman ef við horfum þannig á þetta.“
FH þarf að vinna upp eins marks forskot Frankfurt í seinni leiknum og fyrirliðinn telur frammistöðuna í Kaplakrika sýna að möguleikinn sé sannarlega fyrir hendi.
„Ef við mætum grjótharðar til leiks og gerum það sama og við gerðum í dag þá fáum við færi. Við fengum þau í dag og fáum þau pottþétt í næsta leik. Við þurfum bara að gera nákvæmlega það sama.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
