Fotbolti.net
23.09.26 - 18:29
Snæbjört Pálsdóttir

Aldís fer með kassann út til Frankfurt: Við ætlum bara að vinna þetta lið

Auglýsing
Aldís Guðlaugsdóttir átti góðan leik í marki FH og segir liðið ætla til Þýskalands með það að markmiði að vinna Frankfurt.

Aldís Guðlaugsdóttir átti góðan leik í marki FH og segir liðið ætla til Þýskalands með það að markmiði að vinna Frankfurt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH, átti góðan leik þegar liðið tapaði naumlega, 0-1, gegn Eintracht Frankfurt í Kaplakrika. Hún segir FH hafa staðið jafnfætis þýska stórliðinu og ætlar sér sigur í seinni leiknum.

Lestu um leikinn: FH 0 - 1 Eintracht Frankfurt

„Ég er mjög stolt af liðinu. Allar voru að keyra fram alla orkuna sem þær áttu inni. Mér fannst þetta mark sem við fengum á okkur vera mikil óheppni. Það kom ekki eftir eitthvað svakalegt uppspil, þetta var bara víti og það gerist. Það er hluti af fótboltanum.“

Frankfurt er ósigrað í þýsku úrvalsdeildinni og var fyrirfram talið mun sigurstranglegra. Aldís fann þó ekki fyrir miklum styrkleikamun inni á vellinum.

„Mér fannst þær ekki vera betri aðilinn í dag, ef ég á að vera hreinskilin. Mér fannst þetta vera stál í stál allan leikinn.“

„Þær eru í topp 20 á heimslistanum eða eitthvað í þá áttina og við í hundrað og eitthvað. Mér fannst það hins vegar ekki sjást á vellinum. Við erum bara á pari, langar mig að segja.“

FH fer því með kassann úti til Þýskalands en Aldís segir liðið þurfa að vera beittara þegar færi gefast.

„Við mætum þeim vonandi enn sterkari, verðum snarpari í ákvörðunum, klárum færin okkar og reynum meira á markmanninn þeirra. Það er bara fókus á stöðuna 0–0, þannig séð.“

Aldís fór í rétt horn í vítaspyrnunni sem réði úrslitum og viðurkenndi að hún hefði viljað gera betur í atvikinu.

„Mér fannst ég eiga að vera í honum. Ég hefði viljað vera nær, jafnvel þótt það hefði bara verið með fingurgómunum. Þetta gerðist svo hratt og ég þarf eiginlega að sjá þetta aftur.“

Leikjaálagið á FH er mikið þessa dagana enda liðið jafnframt í miðri baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Aldís segir verkefnið erfitt en vel viðráðanlegt.

„Þetta er erfitt, ég ætla ekki að segja annað, en við tökum bara einn leik í einu. Það er á ábyrgð leikmanna og starfsliðsins að hugsa vel um leikmennina og það hefur virkað vel hingað til. Auðvitað er þetta erfitt en þetta er „doable“.“

Þegar Aldís var spurð hvað FH ætlaði sér í seinni leiknum í Frankfurt var svarið einfalt.

„Það er nú bara ekkert flókið. Við ætlum bara að gera okkar besta og vinna þetta lið.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.