23.09.26 - 16:58
Elvar Geir Magnússon
Kristall: Ætlum að vinna þetta lið og skapa stemningu
Auglýsing

Kristall er stemningsmaður.

Mynd: KSÍ

Kristall er stemningsmaður.

Mynd: KSÍ

Ísland tekur á móti Eistlandi á Laugardalsvellu á laugardag í fyrsta leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar. Svo koma leikir gegn Lúxemborg úti og Búlgaríu heima. Glugganum lýkur á öðrum leik við Eistland, þá á útivelli.
Það er óvanalegt að hafa svona langan glugga en Kristall Máni Ingason, sem kemur fullur sjálfstrausts í þennan leik eftir gott gengi með félagsliði sínu Brann í Noregi, er fullur eftirvæntingar.

„Ég hef yfir engu að kvarta, að fá að vera með strákunum yfir svona langan tíma. Þetta er smá ferðalag og við getum dílað við það, við erum að fljúga í alla leiki með okkar félagsliðum. Þetta er ekki eitthvað sem við könnumst ekki við."
„Menn þurfa að vera faglegir og hugsa um sig á milli leikja. Vera klárir í hvern einasta leik og hverja einustu æfingu."
„Ég myndi segja það. Við erum með sterkt lið og eigum að gera þá kröfu að vinna þetta lið og skapa stemningu á vellinum. Ég hvet alla til að mæta, við ætlum að búa til stemningu."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Kristall meðal annars um Brann og rauða spjaldið sem hann fékk um síðustu helgi.