24.09.26 - 14:59
Kári Snorrason
Ræðir viðburðaríkt sumar í Malmö - „Var í kuldanum en fljótt að breytast“
Auglýsing

Byrjað síðustu þrjá leiki Malmö.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sterklega orðaður frá Malmö í sumar.

Mynd: Malmö FF

Ísland tekur á móti Frakklandi á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta gekk ekki og ég er bara áfram í Malmö.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjað síðustu þrjá leiki Malmö.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Það hefur mikið gengið á í sumar og það er eins og það er. Ég er bara áfram í Malmö, það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Daníel Tristan Guðjohnsen aðspurður um stöðu sína hjá félagsliði sínu Malmö.
Fótbolti.net ræddi við Daníel Tristan fyrir æfingu U21 landsliðsins í Egilshöll fyrr í dag. Liðið tekur á móti Frakklandi á morgun í undankeppni EM.

TENGT EFNI
Daníel Tristan: Malmö vill ekki sleppa mér
Horfir til betri vegar
Daníel hefur verið í byrjunarliði Malmö í undanförnum þremur leikjum eftir að félagið seldi Erik Botheim í glugganum en hann hafði verið fyrir framan Daníel í goggunarröðinni.
Er þetta að horfa til betri vegar?
„Já já, þeir seldu Erik Botheim til Viking og ég er búinn að byrja síðustu tvo. Svo er annar framherji með mér, það verður spennandi að sjá hvernig þetta fer.“
Daníel kom lítið sem ekkert við sögu hjá Malmö í sumar og þurfti að sætta sig við mikla bekkjarsetu. „Þeir voru bara að velja hinn framherjann fram yfir mig. Hann var að gera góða hluti, þannig að maður skildi þetta alveg að einhverju leyti. Maður var í kuldanum en þetta er fljótt að breytast.“
Mikið í gangi
Daníel var sterklega orðaður við brottför frá sænska félaginu og var Arminia Bielefeld í Þýskalandi m.a. sagt hafa viljað fá hann á láni með kaupmöguleika.
Varstu nálægt því að fara frá Malmö?
„Já, ég myndi alveg segja það. Ég var kannski ekki mjög nálægt því en það var mikið í gangi bara. Þetta gekk ekki og ég er bara áfram í Malmö,“ segir Daníel sem var í kjölfarið spurður hvort að hann væri ánægður þar.
„Já já, eins og ég segi þá hef ég byrjað síðustu tvo leiki og þetta hefur opnast aðeins fyrir mig. Þetta er bara geggjað,“ segir Daníel að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.