Guðni Eiríks: Þetta er bara fyrri hálfleikur - Við eigum bullandi séns

Guðni Eiríksson segir FH eiga bullandi möguleika fyrir seinni leikinn gegn Frankfurt í Þýskalandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson segir FH eiga bullandi möguleika fyrir seinni leikinn gegn Frankfurt í Þýskalandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var gríðarlega stoltur af sínu liði eftir naumt 0-1 tap gegn Eintracht Frankfurt í Kaplakrika. Hann segir einvígið svo sannarlega enn lifandi fyrir seinni leikinn í Þýskalandi.
„Ég er ótrúlega stoltur af liðinu, leik liðsins og frammistöðunni í dag gegn gríðarlega sterkum andstæðingi. Við getum ekki verið annað en sátt við þessa frammistöðu.“
FH mætti liði sem er skipað atvinnu- og landsliðskonum í öllum stöðum. Guðni segir Hafnfirðinga hafa ákveðið að víkja ekki frá eigin leikstíl þrátt fyrir styrk andstæðingsins.
„Við vissum að verkefnið væri ærið. Þá er best að spila bara þann leik sem við þekkjum best og við ákváðum að keyra á þær. Við vildum sjá hversu lengi við næðum að gera það og við náðum því helvíti lengi. Það er mjög gott og jákvætt.“
FH vildi jafnframt standa vörð um orðspor íslenskrar kvennaknattspyrnu á stóra sviðinu.
„Við vorum líka að koma fram fyrir hönd íslenskrar kvennaknattspyrnu. Það skipti okkur máli að koma vel frá þessu og gera vel.“
Eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu. Guðni var ekki í vafa um dóminn og tók sérstaklega fram að Jónína Linnet hefði átt frábæran leik þrátt fyrir að hafa gerst brotleg.
„Þetta var klárt víti og ekkert við því að gera. Jóna gerðist sek um brotið en það breytir engu, hún var frábær í þessum leik eins og aðrir leikmenn FH. Það þurfti vítaspyrnu til að skora hjá FH-liðinu í dag og það er allt í lagi.“
Guðni lítur á leikinn í Kaplakrika sem fyrri hálfleik einvígisins og segir FH ætla að halda áfram á sömu braut í Þýskalandi.
„Við eigum eftir að spila seinni leikinn eftir viku og erum klárlega enn þá í þessari baráttu. Við munum bara gera það sama og keyra á þær líka.“
FH þarf að vinna upp eins marks forskot Frankfurt en Guðni telur eitt mark geta gjörbreytt stöðunni.
„Við þurfum að eiga nákvæmlega eins frammistöðu og vera kannski aðeins heppnari fyrir framan markið. Eitt mark gæti breytt miklu fyrir okkur. Það er gaman að fara í seinni leikinn og eiga bullandi séns. Staðan er bara 1-0 og við erum búin að sýna öllum úr hverju við erum gerð.“
FH spilar fimm leiki á sautján dögum en Guðni ætlar ekki að kvarta undan álaginu.
„Það er hellingur af leikjum en leikmennirnir vilja þetta. Þær vilja spila og endurheimta. Það hefur verið lítið um æfingar og meira um endurheimt og leiki. Við viljum vera í þessari stöðu og ég ætla ekki að kvarta í eina sekúndu yfir leikjaálaginu.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
