23.09.26 - 19:19
Arnar Páll Matthíasson
Ian Jeffs: Frammistaðan í fyrri hálfleik drap leikinn
Auglýsing

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik mætti pólska liðinu Czarni í annarri umferð Evrópubikarsins á Eikarvellinum í dag og tapaði 2-6 á heimavelli.
Fótbolti.net náði tali af Ian Jeffs þjálfara Breiðabliks eftir leik.

„Mér líður ekkert rosalega vel. Frammistaðan í fyrri hálfleik var það sem drap leikinn í dag“ sagði Ian Jeffs.
Hvað var það sem klikkaði í fyrri hálfleik?
„Við áttum í brasi með uppspil, gáfum þeim allavega eitt mark á silfurfati og þær skora tvö mörk úr föstu leikatriði. Ég var óánægður með hvernig við vorum að verja markið okkar og þessi mörk úr föstu leikatriðunum eru sloppy og við eigum að gera betur þar.“
Blikar voru óheppnir að mati Jeffs.
„Við skorum mark rétt fyrir leikhlé og komum vel út í seinni hálfleikinn, áttum dauðafæri þar sem við hefðum getað komist aftur inn í leikinn, en fimmta markið þeirra gerði út um leikinn. Svo fáum við rautt spjald og það var erfitt að koma til baka eftir það.“
Blikar voru ósáttir við dómara leiksins og voru m.a. köll eftir vítaspyrnu.
„Það er auðvelt að benda á það þegar þú tapar stórt. Við þurfum að gera betur. Það vantaði svolítið flæði í leikinn og rauða spjaldið hjá Líf fannst mér vera ósanngjarnt.“
Breiðablik fer til Vestmannaeyja á sunnudag og svo er ferðalag framundan til Póllands.
„Við þurfum að setja þessa keppni til hliðar og fókusa á ÍBV á laugardaginn, hvílum okkur vel á morgun og tökum undirbúning á föstudaginn og ferðumst til Vestmannaeyja á laugardaginn og verðum klár í leikinn þar.“
Jeffs var spurður hvernig hann metur möguleika Breiðabliks fyrir seinni leikinn úti í Póllandi.
„Ég hugsa ekki einu sinni um það fyrr en á laugardagskvöld þegar við erum búin með ÍBV leikinn. Við leikgreinum í kvöld og förum yfir þetta á morgun. Einbeitingin er á ÍBV.“