Davíð Snorri: Gæti bara vel verið met
Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, ræddi við Fótbolta.net á hóteli karlalandsliðsins í dag.
Leikmenn eru að koma til Spánar í dag og er fyrsta fótboltaæfingin á morgun. Framundan eru tveir leikir hjá liðinu í Þjóðadeildinni, fyrst útileikur gegn Búlgaríu og svo heimaleikur gegn Lúxemborg. Ísland vann báða leikina gegn sömu þjóðum í síðasta landsleikjaglugga, og þá báða 3-0.