Fotbolti.net
27.10.26 - 16:39
Kári Snorrason

Viktor Bjarki: Hélt að hann væri að hringja út af þjálfarastarfi

Auglýsing
Frá blaðamannafundi Stjörnunnar í dag.

Frá blaðamannafundi Stjörnunnar í dag.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Viktor Bjarki Arnarsson var í hádeginu kynntur til leiks sem nýr yfirmaður fótboltamála hjá Stjörnunni.

Viktor kemur til Garðabæjarfélagsins frá Víkingi, þar sem hann hefur gegnt starfi aðstoðarþjálfara, og tekur nú við þessu nýja hlutverki hjá Stjörnunni.

Af þessu tilefni boðaði Stjarnan til blaðamannafundar á Samsungvellinum í hádeginu í dag þar sem Viktor var kynntur formlega til starfa. Fótbolti.net ræddi við Viktor að fundinum loknum.
Stjarnan hefur kynnt Rúnar Pál og Viktor Bjarka
TENGT EFNI

Stjarnan hefur kynnt Rúnar Pál og Viktor Bjarka

„Þetta kom nú bara til að fyrir nokkrum vikum síðan þá hafði Halldór (Orri Björnsson) samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga. Gaman að geta þess að ég hélt að hann væri að hringja í mig og pæla í þjálfarastarfi en svo kom í ljós að þetta var allt annað starf. Þannig að maður þurfti aðeins að kafa djúpt og velta fyrir sér hvort þetta væri eitthvað sem væri fyrir mann. Eftir nokkra fundi þá kom bara í ljós að mér fannst þetta bara virkilega spennandi starf,“ segir Viktor aðspurður um hvernig það hafi komið til að hann tæki við starfinu.

Hafði ekki séð fyrir sér að fara í álíka starf
Viktor hefur ekki gengt álíka stöðu áður en er spenntur fyrir verkefninu. „Nei, en ég hef nú verið yfirþjálfari í bæði KR og Víkingi en þetta er aðeins öðruvísi starf. Þú ert kominn fyrir ofan meistaraflokkana líka. Þetta er gríðarlega spennandi starf, ég hafði ekki ímyndað mér að fara kannski akkúrat þangað en eftir að þetta kom upp þá lá þetta beint við. Ég held ég sé góður í þessu og ég held að ég nái að gera góða hluti í Garðabænum,“

Hvernig er starfslýsingin?
„Hún er rosa víð, hugsaðu þér. Það er bara aðallega að setja stefnu upp frá meistaraflokki yngri flokkanna. Það er svona þetta helsta. Svo er náttúrulega bara leikmannamál, karla og kvenna, þjálfaramál og annað þannig að þetta er, og svo er þetta mjög vítt þannig að þetta verður mjög skemmtilegt.“

Býst ekki við miklum breytingum
Stjarnan endaði í 7. sæti deildarinnar á nýloknu tímabili. Árangurinn verður að teljast mikil vonbrigði þar sem liðinu var spáð 3. sæti fyrir mót.

Býstu við miklum breytingum á leikmannahópnum fyrir næsta tímabil?

„Nei, það geri ég ekki. Ég tel að hópurinn sé bara nógu sterkur. Þetta bara tvíkaðist til. Það er að verða betri strúktúr á liðinu og ég held að það hafi komið með Rúnari. Ef við þekkjum Rúnar rétt þá er liðið hans í formi og þau berjast og þau hlaupa og þannig að ég er bara mjög spenntur fyrir þessum leikmannahóp.“

Ekki eins manns verk
Hver mun eiga lokaorðið þegar kemur að leikmannamálum?

„Þjálfarinn mun alltaf koma til mín og við munum reyna í sameiningu að hérna leysa það mál og svo er auðvitað bara budget-mál og stjórnin þarf að koma inn í það líka. Þannig að þetta er ekki bara einn maður, yfirmaður knattspyrnumála, sem ræður því hver kemur. Þetta er stjórn og þjálfari og annað þannig að þetta er ekki eins manns verk,“ segir Viktor að lokum.
Kvaddi Víkina á laugardaginn.

Kvaddi Víkina á laugardaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Það er að verða betri strúktúr á liðinu og ég held að það hafi komið með Rúnari.

,,Það er að verða betri strúktúr á liðinu og ég held að það hafi komið með Rúnari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll er tekinn við Stjörnunni á nýjan leik.

Rúnar Páll er tekinn við Stjörnunni á nýjan leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.