Fotbolti.net
27.10.26 - 23:06
Albert Guðmundsson

38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro

Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Auglýsing
38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

Canon

Mynd: Albert Guðmundsson

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao Pedro og lögðu drög að 9. umferð.
Albert og Sindri mynda gott dúó með breiða skírskotun en Albert er mjög reynslumikill spilari og samkvæmt fplresearch.com besti Fantasy Premier League spilarinn á Íslandi. Sindri er reynsluminni og nálgast leikinn með örlítið öðrum hætti en þeir bestu í bransanum. Þar getur brugðið til beggja vona.

Fotbolti.net er með draumaliðsdeild fyrir lesendur þar sem er til mikils að vinna. Fyrstu verðlaun innihalda 100 þúsund kr. gjafabréf upp í ferð á enska boltann með Visitor, 12 rútur af Thule, treyju frá Boltamanninum, gjafabréf á Bullseye og gjafabréf á Matarkjallarann.

Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov

Þú finnur 38 umferðir á Instagram, TikTok og X @38umferdir.

Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Ingling, Heimaform, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.

Ef þú spilar Fantasy Premier League þá borgar sig að fylgjast með 38 umferðum.

Pálmi Freyr mætti sem gestur en Pálmi er ólseigur fantasy spilari og fyrrum þáttastjórnandi Lélega fantasy podcastsins

Pálmi Freyr mætti sem gestur en Pálmi er ólseigur fantasy spilari og fyrrum þáttastjórnandi Lélega fantasy podcastsins

Canon

Mynd: Þjóðleikhúsið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.