29.10.26 - 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Með gögn sem sýna að Finnur Tómas sé enn hraðari

Finnur Tómas á sprettinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Luke Rae á sprettinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón hætti sem styrktarþjálfari KR eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlaupatölur af æfingum á árinu, hraðinn sveiflast aðeins og er það vegna álagsstýringar.

Mynd: GÖI

Finnur Tómas á sprettinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net hefur fengið senda klippu sem sýnir leikmann KR ná 38,2 km/klst hraða í leik liðsins gegn KA í sumar. Leikmaðurinn sem um ræðir er varnarmaðurinn Finnur Tómas Pálmason.
Í síðustu viku var vakin athygli á gríðarlegum hraða Gils Gíslasonar, leikmanni FH, og í kjölfarið barst Fótbolta.net ábending um að Finnur hefði átt sprett þar sem hámarkshraðinn var hærri en hjá Gils í hans hraðasta spretti.
KR notast við gögn í gegnum GPS mælingar frá STATSport en FH nýtir sér Catapult. Það getur því verið einhver munur á mælingunum, en bæði fyrirtækin eru í hæsta gæðaflokki.

TENGT EFNI
Gils hraðari en allir í ensku úrvalsdeildinni
Sprettinn tók Finnur þegar KR tapaði boltanum eftir fast leikatriði. Hægt er að sjá Finn á sprettinum, efst í mynd, í spilaranum hér að ofan.
Fótbolti.net ræddi við styrktarþjálfarann Guðjón Örn Ingólfsson sem starfaði hjá KR tímabilin 2024-26.
„Það er mikilvægt að skoða atvikin þegar þau eiga sér stað, stundum geta komið tölur sem eru ekki rökréttar, þá er kannski leikmanni hrint áfram eða eitthvað svoleiðis sem hefur áhrif."
Annar gríðarlega snöggur leikmaður hjá KR er Englendingurinn Luke Rae.
„Á æfingu hefur Luke Rae mest náð 38,78 km/klst hraða, sem er ákveðin bilun. Við pössuðum alltaf að vera með æfingu einu sinni í viku þar sem menn fara yfir 90% hámarkshraða."
Guðjón segir að það sé mikilvægt fyrir leikmenn að taka reglulega sprett þar sem yfir 90% af hámarkshraða næst til þess að minnka líkur á meiðslum aftan í læri.
„Luke fór alveg reglulega yfir 38 km/klst hraða. Hraðasti spretturinn hans í leik var svo eftir einhverja lélegu sendingu frá honum þar sem hann var að vinna til baka, þannig koma oftast þessir hröðustu sprettir."
„Það er minni séns að ná svakalegum hraða sóknarlega þegar það er pressað hátt, einfaldlega minna pláss til að hlaupa í," segir Guðjón.
Hámarkshraði Finns Tómasar