Fotbolti.net
01.11.26 - 20:34
Stefán Marteinn Ólafsson

Pálmi Rafn: Nær að selja mér hugmyndina að taka hanskana aftur upp

Auglýsing
Pálmi Rafn Arinbjörnsson er mættur aftur á heimahaga

Pálmi Rafn Arinbjörnsson er mættur aftur á heimahaga

Canon

Mynd: Njarðvík

Lengjudeildin

Pálmi Rafn Arinbjörnsson er snúinn aftur heim í Njarðvík eftir að hafa fengið félagaskipti frá Íslandsmeisturum Víkings. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Njarðvíkinga.

Pálmi Rafn heim í Njarðvík (Staðfest)
TENGT EFNI

Pálmi Rafn heim í Njarðvík (Staðfest)

„Það er bara geggjað að fá að hitta gömlu félagana aftur sem ég var að vinna með fyrir mörgum árum síðan“ sagði Pálmi Rafn Arinbjörnsson nýr leikmaður Njarðvíkur. 

„Það er gaman að fá að komast í búningin aftur og ég er bara ógeðslega spenntur að spila fyrir Njarðvík aftur“ 

Pálmi Rafn hættur - „Tilfinningin að elska fótbolta kom aldrei"
TENGT EFNI

Pálmi Rafn hættur - „Tilfinningin að elska fótbolta kom aldrei"

Pálmi Rafn spilaði síðast með Víking Reykjavík en hann lagði hanskana á hilluna fyrir síðasta tímabil en dregur þá fram aftur fyrir næsta tímabil og spilar með uppeldisfélaginu. 

„Þetta kemur raunverulega svolítið óvænt upp. Ég hitti á Rabba (Rafn Markús Vilbergsson, yfirmann knattspyrnumála hjá Njarðvík) einhversstaðar og ég man ekki einu sinni hvar þar var, hvort það var í Krónunni eða eitthvað svoleiðis“

„Við tökum bara stutt spjall og hann nær bara að selja mér hugmyndina að taka hanskana aftur upp og taka tímabil með Njarðvík og ég fer bara heim og tek þetta á koddann“

„Eftir frekari spjöll með Rabba þá náði hann bara að selja mér þetta og ég talaði við mína nánustu vini og fjölskyldu“

„Þetta er líka bara mjög spennandi, þegar ég lagði hanskana á hilluna þá var ég alltaf með það í huga að ég gæti byrjað aftur þannig maður er alltaf opin fyrir öllu svona og eftir fund með Rabba, stjórn og annað þá var það bara geggjað og ég er ótrúlega spenntur fyrir þessu“ sagði Pálmi Rafn Arinbjörnsson. 

Nánar er rætt við Pálma Rafn í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.