Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. apríl 2018 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: ÍH fer í úrslitakeppnina
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Stál-úlfur 0 - 4 ÍH
0-1 Hilmar Ástþórsson ('16)
0-2 Hilmar Ástþórsson ('22)
0-3 Atli Már Grétarsson ('57)
0-4 Guðmundur Arnar Jónsson ('89)

ÍH tryggði sér í dag toppsæti riðils 4 í C-deild Lengjubikarsins með öruggum sigri gegn Stál-úlfi.

Hilmar Ástþórsson setti fyrstu tvö mörk leiksins í fyrri hálfleik og gerðu liðsfélagar hans endanlega út um Stál-úlf með tveimur mörkum í síðari hálfleik.

ÍH lýkur keppni með fullt hús stiga. Stál-úlfur endar í þriðja sæti með fjögur stig.

ÍH er því komið í úrslitakeppnina ásamt Árborg og Mídas. Ýmir verður að öllum líkindum fjórða liðið til að komast í undanúrslitin, liðinu nægir stig gegn Úlfunum til að tryggja toppsæti riðilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner