Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. desember 2014 18:12
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári kominn með leikheimild með Bolton
Mynd: Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen er kominn með leikheimild hjá Bolton en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.

Eiður Smári skrifaði í síðustu viku undir samning við Bolton sem gildir út tímabilið.

Hann náði hins vegar ekki að fá leikheimild í tæka tíð fyrir leikinn gegn Reading um síðustu helgi.

Eiður verður nú klár í slaginn þegar Bolton fær Ipswich í heimsókn næstkomandi laugardag.

,,Mér líður vel. Ég er meiðslalaus en ég á ennþá 25% inni. Það er eitthvað sem við munum vinna í næstu vikurnar," sagði Eiður á fréttamannafundi í dag.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner