Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 12. mars 2018 08:30
Hafliði Breiðfjörð
Svona var hann 2012
Nýr HM búningur Íslands kynntur 15. mars klukkan 15:15
Mynd: Errea/Ýmir
Við teljum niður í nýja landsliðsbúninginn, en nú eru 3 dagar þangað til Errea og KSÍ afhjúpa búninginn sem landslið Íslands mun spila í á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í sumar.

Nýi búningurinn verður kynntur formlega fimmtudaginn 15. mars klukkan 15:15.

Næstu daga ætlar Fótbolti.net, í samstarfi við Errea að rifja upp hvernig gömlu landsliðsbúningarnir litu út, eða allt frá árinu 2002, en þá spilaði landsliðið í fyrsta skipti í búningi frá Errea.

Í dag er komið að búningnum frá árinu 2012 en þá hófst undankeppni HM 2014. Þetta ár spilaði Ísland í búningnum sem sjá má á myndinni hér til hliðar og var sjöundi búningur Íslands undir merkjum Errea. Þetta er búningurinn sem Ísland spilaði í þegar við fórum í umspil gegn Króatíu um sæti á HM í Brasilíu.

Leikjahæstir í undankeppni HM 2014
Birkir Bjarnason (10)
Hannes Þór Halldórsson (10)
Ragnar Sigurðsson (10)
Ari Freyr Skúlason (9)
Aron Einar Gunnarsson (9)
Gylfi Þór Sigurðsson (9)
Alfreð Finnbogason (8)
Birkir Már Sævarsson (8)
Jóhann Berg Guðmundsson (8)
Kári Árnason (8)
Athugasemdir
banner
banner