Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
   mið 22. mars 2017 11:39
Hafliði Breiðfjörð
Parma
Aron: Þetta verður ekki auðvelt
Icelandair
Aron ræðir við Helga Kolviðsson aðstoðarþjálfara fyrir landsliðsæfingu í dag.
Aron ræðir við Helga Kolviðsson aðstoðarþjálfara fyrir landsliðsæfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er fínt að vera búinn að losna við skeggið. Það var kominn tími á að breyta aðeins til. Þetta var ákveðin vinna að olíubera þetta alltaf," sagði Aron Einar Gunnarsson léttur í bragði í viðtali við Fótbolta.net í dag.

Á föstudaginn mun hann í fyrsta skipti í langan tíma ekki vera með skeggið fræga í landsleik en skeggið varð heimsfrægt á EM í fyrra. Aron reiknar með hörkuleik gegn Kosóvó.

„Þetta eru sprækir og teknískir strákar. Þeir beita skyndisóknum vel. Þetta er nýtt lið og það tekur tíma að búa til lið. Þetta eru góðir leikmenn sem eru að spila í sterkum deildum og þeir hafa verið að fá leikmenn sem eru að spila fyrir góð lið. Þetta verður ekki auðvelt. Fólk heldur kannski að þetta verði auðvelt en enginn landsleikur er auðveldur og við vitum það manna best."

Þónokkur forföll eru í íslenska liðinu en Aron hefur ekki miklar áhyggjur af því.

„Þessir sem hafa komið inn í þetta vita nákvæmlega hvað er ætlast til af þeim. Þeir kunna þessa taktík 100% og það er gamla góða tuggan, það kemur maður í manns stað. Þessi hópur hefur verið það lengi saman að það vita allir hvað er ætlast til af þeim. Það er vonandi að þeir stígi inn og komi með nokkur mörk."

Aron kemur í góðum gír inn í landsleikina en hann hefur spilað vel með Cardiff undanfarna mánuði.

„Það gengur mjög vel. Ég er í fínu standi og er búinn að spila mikið af leikjum. Ég er í góðu leikformi og klár í slaginn," sagði Aron en hann hefur verið í lykilhlutverki hjá Cardiff síðan Neil Warnock tók við liðinu snemma á tímabilinu.

„Hann kom inn í þetta og breytti hugsunarhætti liðsins. Hann kom með ákveðið sjálfstraust inn í hópinn og fór back to basics. Þetta er flottur þjálfari sem er með mikla reynslu," sagði Aron.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner