Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. mars 2015 13:40
Magnús Már Einarsson
Walcott segist ekki hafa rifist við Wenger
Mynd: Getty Images
Theo Walcott segir ekkert til í því að hann hafi rifist við Arsene Wenger, stjóra Arsenal, á æfingu á dögunum.

Samningur Walcott rennur út eftir rúmt ár og orðrómur hefur verið um að hann hafi rifist við Wenger út af samningamálum.

,,Sögusagnir um samningakröfur og rifrildi við stjórann eru algjört kjaftæði," sagði Walcott.

Wenger sagði á dögunum að hann vildi hefja viðræður við Walcott sem fyrst en ekkert er að frétta enn sem komið er.

,,Það hafa engar viðræður átt sér stað ennþá og ég einbeiti mér að því að gera mitt besta fyrir Arsenal," sagði Walcott.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner