Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Lengjudeild karla
SaltPay-völlurinn
1 - 2
Selfoss
Selfoss
0 - 121' Valdimar Jóhannsson 0 - 242' Gary John MartinÓlafur Aron Pétursson 45'1 - 2
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Þórsarar brutu múrinn en Selfyssingar tóku stigin

Hvað réði úrslitum?

Þórsarar voru líklegri í upphafi leiks en fá mark í bakið eftir 20 mínútur. Þetta var frekar bragðdauft þangað til Selfyssingar gera breytingu og bæta marki við. Seinni hálfleikur var bara eins og svo margir á Þórsvelli. Þórsarar með yfirhöndina en ná ekki að skapa sér neitt fyrr en seint í leiknum.

Bestu leikmenn

1. Gary Martin

Skorar og leggur upp. Hann er búinn að vera sjóðandi heitur að undanförnu.

2. Valdimar Jóhannsson

Kom Selfyssingum á blað eftir góðan undirbúning Gary og lagði upp fyrir Gary með glæsilegri sendingu eftir geggjað samspil liðsins.

Atvikið

Jóhann Helgi skoraði mark á 92. mínútu sem var dæmt af vegna rangstöðu. Undirritaður sá það ekki alveg og það tók smá tíma fyrir dómarana að komast að þessari niðurstöðu.

Hvað þýða úrslitin?

Selfyssingar lyfta sér upp um eitt sæti, uppfyrir Aftureldingu í 8. sætið. Þórsarar geta farið pressulausir inn í síðasta leikinn gegn Þrótti þar sem liðið getur ekki fallið.

Vondur dagur

Það gengur ekkert hjá framlínu Þórs að skora! Fannar Daði tók alltof margar rangar ákvarðanir, Jóhann Helgi var mjög óheppinn, skoraði tvö mörk sem voru dæmd af honum og kom sér í góðar stöður en inn vildi boltinn ekki. Ásgeir var eiginlega alveg týndur.

Dómarinn - 7

Bara fínn leikur. Það eru bara þessi tvö margumræddu mörk. Það er alltaf hasar inn í teignum og í dag ákvað hann að dæma á sóknarmann. Ég get ekki dæmt um rangstöðuna, það var erfitt að átta sig á því hvað var í gangi þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.