SKÝRSLAN: KR gerir sig líklega í evrópubaráttu
Hvað réði úrslitum?
Algjörlega dominerandi framistaða KR. Keflavík átti aldrei séns og þetta hefði rauninni átt að vera stærri sigur Vestubæjinga.
Bestu leikmenn
1. Kennie Chopart (KR)
Kennie á þátt í báðum mörkunum. Skorar fyrra og á svo gullfallega stoðsendingu í seinna markinu, frábær framistaða
2. Kristinn Jónsson (KR)
Kiddi þurfti ekki oft að hafa mikið fyrir því að verjast þannig hann var eins og kóngur í ríki sínu upp vinstri kantinn og var mjög áhrifaríkur í sóknarleik gestanna.
Atvikið
Þegar Frans Elvarsson fer útaf á börum. Keflvíkingar vildu fá að sjá spjald ég sá nú ekki atvikið en aðrir í blaðamannastúkunni voru ekki á því máli. Lykilatriðið var þó að þarna missa þeir mann útaf þegar þeirra hópur er nú þegar mjög þunnur.
Hvað þýða úrslitin?
KR færir sig upp í 3. sætið með 38 stig og blanda sér vel í evrópubaráttuna en Valur á þó leik inni í kvöld gegn Breiðablik og með sigri þar taka þeir sætið af KR.
Keflavík situr enn í 9. sæti með 18 stig en eins og er þá er aðeins 3 stig í botnlið ÍA þannig þeir eru enn í mikilli baráttu um að halda sér uppi.
Vondur dagur
Þetta fer bara á Keflavíkur liðið sem heild. Þeir áttu aldrei séns og litu bara ekkert út fyrir að vera reyna bjarga sér frá falli. Hálf skömmustuleg framistaða.
Dómarinn - 8
Sigurður Hjörtur var flottur í leiknum að mínu mati. Leyfði leiknum að fljóta og var ekkert að rífa upp spjöldin að óþörfu.



