Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingur R.
Víkingur R.
Pepsi Max-deild karla
Víkingsvöllur
Frábærar aðstæður í Hamingjunni.
3 - 0
HK
HK
Nikolaj Andreas Hansen 36'1 - 0Erlingur Agnarsson 58'2 - 0Erlingur Agnarsson 80'3 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Mikil hamingja hjá toppliðinu og öðrum hressum Víkingum í Víkinni

Hvað réði úrslitum?

Meiri gæði hjá Víkingi, meira skipulag og það sást betur hvað þeir ætluðu sér með sínum upphlaupum og sóknum. Víkingar voru miklu betri og verðskulduðu þennan sigur.

Bestu leikmenn

1. Erlingur Agnarsson

Tvö mörk og hefði getað skorað fleiri, var virkilega góður og virkaði vel með Nikolaj frammi. Ef stuðningsmenn væru hluti af Fantasy-leiknum þá væru þeir samt í þessu boxi, frábærir í dag.

2. Pablo Punyed

Gæði, gæði. gæði og hugarfar.

Atvikið

Annað markið innsiglir sigurinn. Gríðarlega vel tekið hjá Erlingi eftir einhvern misskilning við vítateig HK. Sendingin frá Pablo í fyrsta markinu samt... tilnefnd hér líka.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er á toppnum eitthvað fram á kvöld hið minnsta. HK er áfram stigi fyrir ofan fallsæti. Fylkir og Keflavík töpuðu líka en ÍA vann í botnbaráttunni.

Vondur dagur

Birnir Snær Ingason annað hvort mætti meiddur til leiks eða meiddist mjög snemma í leiknum. Virkaði kvalinn og maður beið eftir skiptingunni allan leikinn.

Dómarinn - 7

Jóhann stóð sig heilt yfir mjög vel í þessum leik en ég er fullkomlega ósammála honum í atvikinu þegar Halldór Smári fékk gult spjald.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.