Fotbolti.net
Einar Knudsen
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
Lengjudeild karla
Ólafsvíkurvöllur
3 - 5
Grótta
Grótta
0 - 14' Kári Sigfússon0 - 215' Pétur Theódór Árnason 0 - 331' Gabríel Hrannar Eyjólfsson0 - 450' Óliver Dagur Thorlacius Harley Bryn Willard 62'1 - 4Bjarni Þór Hafstein 68'2 - 42 - 578' Björn Axel Guðjónsson Harley Bryn Willard 90'3 - 5
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Átta marka veisla á Ólafsvíkurvelli

Hvað réði úrslitum?

Það var fyrri hálfleikurinn hjá Gróttumönnum, þeir skoruðu 3 mörk á 30 mínutum, og skoruðu fjórða markið eftir 5 mínutur í þeim seinni, eftir það vissi maður alveg hvert stefndi.

Bestu leikmenn

1. Gabríel Hrannar Eyjólfsson

Flottur leikur hjá dreng, var allt í öllu í fyrri hálfleik og var spila boltanum vel og skapandi, fékk einnig skráð á sig mark.

2. Kári Sigfússon

Þessi ungi drengur var mjög hættulegur í sínum aðgerðum í dag, sýndi hvað hann er með gott touch og hrikalega snöggur, og var hann skapandi mikinn usla á kantinum

Atvikið

Fyrsta markið, Þetta virtist vera aukaspyrna þar sem Eli Keke var að fara hreinsa skoppandi bolta inní markteignum, og Kári setur löppina sína út á móti honum og virtist takkarnir fara í ristina á Eli en ekkert var dæmt. Svo var annað atvik þegar Grótta skorar eftir hornspyrnu, en Gróttumenn þjörmuðu að markmanni Víkinga og hann fékk að njóta vafans inn í sínum martkteig, hann var bara tuddaður inni markið og gat ekkert gert þegar sendingin kom fyrir, þarna átti að dæma aukaspyrnu allann daginn.

Hvað þýða úrslitin?

Mjög góð úrslit fyrir Gróttu, fara með flott sjálfstraust inní næsta leik á móti Aftureldingu og vonar Gústi þjálfari að þeir haldi þessu áfram að skora mörg mörk og ná í 3 stig. Fyrir Víkinga þýðir þetta svo sem ekki neitt, enn eitt tapið og hrikalegur varnarleikur, sem var við að búast, en þeir sýndu í þessum leika að þeir geta skorað útfrá spili.

Vondur dagur

Ætla ekki að benda neinum fingrum á brotið lið sem er löngu fallið, en það er alltaf einhver einbeitingarleysi í öftustu varnarlínu Víkinga og það er liggur við að það sé gefið að þeir fái á sig 3 til 4 mörk á sig í fyrri hálfleik.

Dómarinn - 6

Hann Arnar Ingi hefur átt betri daga að mínu mati, hann leyfði of mikið á köflum og svo dæmdi hann á litil brot inná milli, vantaði samræmi í dómgæsluna
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.