SKÝRSLAN: Orkumiklir Blikar settu einn fingur á bikarinn
Hvað réði úrslitum?
Orka Blikanna og trú.
Þolinmóðir í fyrstu og eftir að hafa sett fyrsta markið gengu þeir frá verkefninu á fagmannlegan hátt.
Virkilega verðskuldaður sigur!
Bestu leikmenn
1. Árni Vilhjálmsson
Stáltaugar á punktinum á 60.mínútu og svo frábær afgreiðsla í þriðja markinu. Hann verður lykill í þeim árangri sem Blikar ná. Geislar af sjálfstrausti.
2. Gísli Eyjólfsson
Miðjumennirnir Gísli og Alexander voru frábærir í leiknum, stjórnuðu umferðinni og pökkuðu Valsmiðjunni saman. Gísli fær þetta því hann var áræðinn í fyrsta markinu sem var lykill að leiknum.
Atvikið
Víti Blikanna réð öllu um leikinn og það voru Valsmenn sem sáu um það.
Mikill klaufagangur í þeirra vítateig sem endaði með töpuðum bolta og svo leikbroti. Eftir þetta mark sá Valsarar ekki til sólar.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar þurfa nú 4 stig úr síðustu tveimur umferðunum til að lyfta bikarnum á Kópavogsvelli 25.september.
Titillinn er runninn úr greipum Valsara sem þurfa nú að einbeita sér að því að ná einu þriggja efstu sætanna sem gefa Evrópukeppni næsta sumar.
Vondur dagur
Valsliðið átti erfiðan dag sóknarlega og það var pínu skrýtið að sjá meistarana fjara svona út eftir fyrsta markið.
Ég get þó ekki sleppt Johannes Vall við að fá sérstakan stimpil. Karlanginn átti risaþátt í fyrsta marki Blika og Jason spændi hann af sér í marki tvö. Einfaldlega ekki nógu gott.
Dómarinn - 9,0
Frábærlega dæmdur leikur þar sem mikið var um pústra og pirring.
Það er þó spurning hvort Guðmundur Andri átti ekki að fá seinna gula þegar hann setti hönd í bolta á gulu...en allt annað er óumdeilt held ég. Flott tríó á ferð!



