Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
0 - 1
Fjölnir
Fjölnir
0 - 185' Guðmundur Karl Guðmundsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Fjölnismenn stálu sigrinum í Þorpinu

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn stóðu af sér góða byrjun Þórsara og náðu að refsa í síðari hálfleik. Gríðarlega mikilvægt sigurmark.

Bestu leikmenn

1. Sigurjón Daði Harðarson

Markvörður Fjölnis sá til þess að staðan var jöfn í hálfleik og stóð fyrir sínu í öllum leiknum milli stanganna.

2. Guðmundur Karl Guðmundsson

Skoraði mikilvægt sigurmark. Mikilvægur sigur fyrir Fjölni þar sem Afturelding missteig sig í kvöld.

Atvikið

Það ætlaði allt um koll að keyra eftir tæplega hálftíma leik þegar Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson braut á Ingimar Arnari. Helgi Mikael gerði hárrétt þar og dæmdi gult á Vilhjálm.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA og Afturelding misstigu sig í kvöld og Fjölnir aftur komið upp í 2. sætið og er sjö stigum á eftir toppliði Aftureldingar. Það er stutt á milli í þessari deild, Þór hefði með sigri verið í 7. sæti með jafn mörg stig og Grótta sem situr í 5. sæti en liðið er í staðin í 8. sæti þremur stigum frá fallsæti.

Vondur dagur

Þórsarar byrjuðu leikinn gríðarlega vel. Pressuðu Fjölnismenn hátt og komu sér í góðar stöður en vantaði upp á síðasta þriðjungnum. Fannar Daði komst í góðar stöður en fór illa með tækifærin.

Dómarinn - 8

Helgi Mikael var með mjög góð tök á leiknum. Hefði auðveldlega geta farið í háaloft en hann dæmdi þetta virkilega vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.