96. mín
Leik lokið
95. mín
BJörg keyrði upp kantinn og senti á Natalie í gegn en hún var rangstæð
94. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtBergdís Sveinsdóttir
92. mín
MAAAARK!
Selma Dögg Björgvinsdóttir
89. mín
Aukaspyrna fyrir FHL rétt fyrir framan miðju og boltinn er skallaður í hornspyrnu
88. mín
FHL ná að spila vel og komust að teig Víkings þar sem Alba fékk boltann en skaut aðeins of laust í hann og Sigurborg greip hann
87. mín
Gult spjald
Bergdís Sveinsdóttir
Bergdís togaði mikið í hendina á Barbi86. mín
Víkingur eru enn og aftur í sókn og Bergdís endaði með boltann fyrir utan teiginn og tók utanfótar spyrnu en boltinn fór vel framhjá
82. mín
Nadía fékk of mikinn tíma með boltann fyrir utan teig FHL og náði skoti sem fór yfir markið
81. mín
Víkingur átti þrumuskot á mark FHL en boltinn fór rétt framhjá
80. mín
10 mín eftir af venjulegum leiktíma, Víkingur eru búnar að vera stöðugt að sækja á mark FHL en varnarmenn FHL hafa staðið þær vel af sér
77. mín
Sofia sólaði Emmu og kom boltanum inn í teig, varnarmaður Víkings sparkaði í boltann og fór hann næstum því inn í eigið mark
75. mín
Gult spjald
Barbara Perez Iglesias
Barbi fékk gult fyrir peysutog74. mín
InnHafdís Bára Höskuldsdóttir
ÚtHulda Ösp Ágústsdóttir
74. mín
InnFreyja Stefánsdóttir
ÚtTara Jónsdóttir
74. mín
InnAlba Prunera Vergé
ÚtHafdís Ágústsdóttir
74. mín
FHL fá aukaspyrnu rétt fyrir aftan miðlínu
72. mín
FHL í dauðafæri en Natalie framherji FHL náði ekki boltanum nógu vel og Sigurborg greip hann í jörðinni
71. mín
Sofia átti góðan sprett upp kantinn og snéri á Emmu rosalega en missti hann svo útaf
68. mín
Víkingur eru að ná að halda vel í boltann og spila vel
66. mín
Víkingur komu með frábæran bolta inn í teiginn en Dagný Rún skallaði hann framhjá
64. mín
Víkingur fær hornspyrnu
60. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtLinda Líf Boama
60. mín
InnBjörg Gunnlaugsdóttir
ÚtElísabet Arna Gunnlaugsdóttir
59. mín
Linda Líf braut á Rósey eftir peysutog
56. mín
Hornspyrna fyrir Víking en Ashley greip boltann
55. mín
FHL spiluðu frábærlega í gegnum vörnina hjá Víkingi og Sofia fékk boltann í einn á einn stöðu á móti Sigurborgu markmanni Víkings en boltinn fór í fjærstöngina og út í teig þar sem Sigurborg greip hann
53. mín
Tara skaut á markið Ashley varði í aðra hornspyrnu
52. mín
Víkingur ógnar endalaust og tóku skotið en boltinn fór í Barbi og í hornspyrnu
51. mín
Bergdís skaut en boltinn fór beint í Viktoríu varnarmann FHl
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
44. mín
Bergdís fékk boltann rétt fyrir utan teiginn og tók skotið en hann fór rétt framhjá
43. mín
Sófia tók spyrnuna og boltinn skoppaði í teignum stelpurnar börðust um boltann en endaði á því að Natalie braut af sér og Víkingur fékk aukaspyrnu í eigin vítateig
42. mín
FHL fá fyrstu hornspyrnuna sína
36. mín
Víkingur reyndu að senda boltann fyrir teiginn hjá FHL en skutu beint í andlitið á Barbi en það er í lagi með hana
31. mín
Enn og aftur komu Víkingur með kross inn í teig og 'Olöf Rún skallaði boltann í hornspyrnu
29. mín
FHL í sókn og Sofia skaut en Sigurborg varði
28. mín
Dagný Rún keyrði upp kantinn og kom með kross en Ashley greip hann
25. mín
Barbi hljóp upp völlinn og Sofia kom með kross inn í teiginn en boltinn endaði hjá vörn Víkings og skallaður í burtu
23. mín
Víkingur ógna stöðugt og Hulda Ösp kom með skot sem Viktoría skallaði í hornspyrnu
18. mín
Linda Líf kom með sendingu fyrir markið sem endaði hjá Huldu Ösp og hún tók skotið en 'Iris Vala henti sér fyrir skotið
16. mín
FHL með góða sókn og Sofia gerði vel en botinn endaði í markspyrnu
14. mín
Víkingur fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig en boltinn var hreinsaður í burtu
13. mín
Selma Dögg ógnar með skoti sem Fhl náðu að hreinsa í burtu
10. mín
Víkingur á hornspyrnu sem er hreinsuð í aðra hornspyrnu
8. mín
Víkingur náðu að sóla sig inn völlinn og Selma Dögg fékk boltann fyrir utan teig og fór framhjá varnarmönnum FHL en Ashley bjargaði þeim og hrifsaði boltann af henni
6. mín
Brotið á Rósey inn í vítateig þannig FHL fengu aukaspyrnu
5. mín
Víkingur enn og aftur í sókn og náðu skot á markið en Ashley varði í hornspyrnu
3. mín
Víkingur í sókn og komu með kross sem Rósey skallaði burt, boltinn endaði hjá Bergdísi sem tók skot en það fór beint í varnamann FHL
1. mín
Víkingur með inn í sendingu en 'Olöf gerir vel og skallar í burtu
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Staðan í deildinni
Víkingur er í toppsæti deildarinnar með 26 stig en fjögur lið ógna þeim í næstu sætum, öll með 23 stig. Það eru Fylkir, Grótta, HK og Afturelding.
FHL er í 7. sætinu með 13 stig og sigla nokkuð lygnan sjó, sex stigum frá KR sem er í fallsæti.
Fyrir leik
Dómarateymið
Magnús Þór Jónsson dæmir leikinn í dag og er með þá Vigni Frey Magnússon og Jóhann Finn Sigurjónsson sér til aðstoðar á línunum.
Magnús Þór Jónsson dæmir í dag.
Magnús Þór Jónsson dæmir í dag.Fyrir leik
Leikdagur í Fjarðabyggð
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Fjarðabyggðarhöllinni.
Hér tekur FHL á móti Víkingi í Lengjudeild kvenna en leikurinn hefst klukkan 18:00.



