Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Grindavík
Grindavík
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
1 - 1
Vestri
Vestri
0 - 145' Benedikt V. WarénÓskar Örn Hauksson (víti) 73'1 - 1
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Glæsimark Benedikts dugði Vestra ekki

Hvað réði úrslitum?

Guð og lukkan? Augnablikið? Ómögulegt að segja eftir svona leik. Lokaður leikur og fátt um opin tækifæri þó gestirnir hafi eflaust stjórnað leiknum meira heilt yfir. Líklegast þó sanngjörn úrslit heilt yfir.

Bestu leikmenn

1. Benedikt V. Warén

Fær þetta í kvöld fyrir þetta frábæra mark sitt. Var þess utan oft að koma sér í ágætar stöður en vantaði þennan fræga herslumun

2. Ólafur Flóki Stephensen

Óvænt nafn á lista. Mér fannst Ólafur virkilega sprækur í vinstri bakverðinum hjá Grindavík í kvöld. Öflugur varnarlega og var til reiðu í sóknarleiknum líka og sýndi dugnað og elju.

Atvikið

Mark Benedikts gladdi augað. á mínútu 51:33 í útsendingunni á Youtube fyrir áhugasama sem vilja skoða. Mæli alveg með, frábært skot

Hvað þýða úrslitin?

Gera meira fyrir lið Vestra en Grindavík það er morgunljóst. Heimamenn í Grindavík sitja í níunda sæti deildarinnar með 16 stig aðeins tveimur stigum meira en Njarðvík sem situr í ellefta sæti. Vestri á hinn bóginn situr í sjötta sæti deildarinnar með tuttugu stig og aðeins eitt mark heldur þeim fyrir neðan umspilslínuna

Vondur dagur

Óskar Örn Hauksson og Marko Vardic eru báðir með hausverk þessa stundina eftir ljótan árekstur í fyrri hálfleik. Báðir blóðguðust þeir en héldu báðir leik áfram. Verður vont´í kvöld, verra á morgun en svo lagast það.

Dómarinn - 6

Mig rekur ekki minni í að hafa séð Svein Arnarsson dæma áður. Voru ákvarðanir hans rangar? Nei flestar voru þær líklega réttar en ögn meiri ákveðni og betri leikstjórn híft hann upp fyrir mér. Að vera dómari er þo fyllilega sambærilegt því að vera leikmaður og menn bæta sig með aukinni reynslu og þekkingu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.