Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
Í BEINNI
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Breiðablik
LL 0
2
Sporting
Afturelding
1
3
Keflavík
0-1 Edon Osmani '14
0-2 Mihael Mladen '35
Georg Bjarnason '83 1-2
1-3 Valur Þór Hákonarson '93
25.07.2024  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Maður leiksins: Ásgeir Orri Magnússon
Byrjunarlið:
24. Jökull Andrésson (m)
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Aron Jóhannsson ('81)
8. Aron Jónsson
10. Elmar Kári Enesson Cogic
16. Bjartur Bjarmi Barkarson ('69)
22. Oliver Bjerrum Jensen
23. Sigurpáll Melberg Pálsson
25. Georg Bjarnason
34. Patrekur Orri Guðjónsson ('64)
77. Hrannar Snær Magnússon

Varamenn:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
12. Birkir Haraldsson (m)
4. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('69)
9. Andri Freyr Jónasson ('64)
11. Arnór Gauti Ragnarsson
17. Valgeir Árni Svansson
19. Sævar Atli Hugason ('81)

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Þorgeir Leó Gunnarsson
Amir Mehica
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Ármann Örn Vilbergsson

Gul spjöld:
Elmar Kári Enesson Cogic ('16)
Bjartur Bjarmi Barkarson ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Keflavík sigrar í Mosfellsbænum! Keflvíkingar vinna 3-1!

Skýrsla og viðtöl væntanleg.
95. mín
Samstuð milli Jökuls og Vals. Valur liggur eftir og þarfnast aðhlynningar.

Leikurinn hafin á ný og virðist sem Valur geti haldið leik áfram.
93. mín MARK!
Valur Þór Hákonarson (Keflavík)
Keflavik að ganga frá þessu!! Heimamenn verið að sækja stanslaust síðustu mínútur. Keflavík þýst af stað í skyndisókn. Boltinn berst inn á teiginn og Valur hrifsar hann til sín. Klárar færið vel. Keflvíkingar taka tveggja marka forystu!
92. mín
Kemur fyrirgjöf inn á teig Keflvíkinga. Boltinn of innarlega og Ásgeir handsamar knöttinn.
91. mín
Það eru sjö mínútur í uppbótartíma
91. mín
Afrturelding fær aukaspyrnu á hættulegum stað!

Keflavík hreinsar.
90. mín Gult spjald: Kári Sigfússon (Keflavík)
87. mín
Inn:Rúnar Ingi Eysteinsson (Keflavík) Út:Mihael Mladen (Keflavík)
Keflvíkingar gera tvöfalda skiptingu fyrir lokamínúturnar.
87. mín
Inn:Guðjón Pétur Stefánsson (Keflavík) Út:Frans Elvarsson (Keflavík)
83. mín MARK!
Georg Bjarnason (Afturelding)
Þeir minnka munin!!!! MAAAARK!!

Afturelding minnkar munin! Boltinn kemur inn á teiginn og boltinn flakkar á milli manna. Að lokum er það Georg sem nær boltanum og smellir honum í netið. Við erum komin með leik!
83. mín
Afturelding að vinna aukaspyrnu á vænlegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.
81. mín
Inn:Sævar Atli Hugason (Afturelding) Út:Aron Jóhannsson (Afturelding)
80. mín
Færi! Andri Freyr með hellinga af plássi inn á teig gestannaæ Aðeins of lengi að koma skotinu frá sér og boltinn hafnar í varnarmanni.
79. mín
Heimamenn verið afgerandi sóknharðari í þessum seinni hálfleik. Verið meira með boltann og komið sér í nokkur færi. Keflavík varið forystuna sína vel.
75. mín
Sláin!! Hrannar með góðan bolta inn á teig gestanna og er það Andri Freyr sem hoppar hæst. Hann nær skalla og stangar hann í átt að marki en boltinn hafnar í sláni!
74. mín
Skyndisókn! Gestirnir sækja hratt. Mihael Mkladen kemur sér í skotfæri en skotið hafnar í varnarmanni.
71. mín
Michael Malden kemur boltanum í net Aftureldingar eftir laglega sókn en flaggið fer á loft.
69. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (Afturelding) Út:Bjartur Bjarmi Barkarson (Afturelding)
68. mín Gult spjald: Bjartur Bjarmi Barkarson (Afturelding)
66. mín
Dauðafæri!! Afturelding sækir hratt! kemst í góða stöðu og Oliver gefur boltan inn á teiginn. Góð fyrirgjöf og á Andri Freyr skalla framhjá af mjög stuttu færi.
64. mín
Inn:Andri Freyr Jónasson (Afturelding) Út:Patrekur Orri Guðjónsson (Afturelding)
64. mín
Inn:Valur Þór Hákonarson (Keflavík) Út:Sami Kamel (Keflavík)
62. mín
Færi! Vel unnin sókn hjá Aftureldingu! Boltinn kemur inn á teigin og á Aron Jóhanns marktilraun rétt fyrir utan teig. Fast skot en boltinn framhjá.
59. mín
Afturelding fær horn.

Ekkert verður úr því.
57. mín
Inn:Kári Sigfússon (Keflavík) Út:Edon Osmani (Keflavík)
55. mín
Edon Osmani höltrar og sparkar boltanum út af. Fær aðhlynningu, vonandi ekkert alvarlegt.

Virðist sem Edon sé að koma út af
49. mín
Hrannar Snær á skot fyrir utan teig. Skýtur meðfram jörðinni en boltinn framhjá.
48. mín
Aron Elí á gott hlaup upp vinstri kantinn og kemur boltnaum inn á teig Keflvíkinga en gestirnir hreinsa.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Það eru heimamenn sem rúlla seinni hálfleiknum í gang.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur í Mosfellsbænum! Keflavík leiðir með tveimur mörkum gegn engum þegar liðin ganga til búningsherbergja!

Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
45. mín
+1 Kemur hættulegur bolti inn á teig Keflvíkinga frá Georgi. Boltinn á hárréttan stað milli varnarlínu og markmanns en enginn nær til hanns.
45. mín
Uppgefinn uppbótartími fyrri hálfleiks er 3 mínútur.
43. mín
Vel varið! Hrannar komin inn á teig gestana og kemur sér í skotfæri. Á bylmingsfast skot á mark en vel varið hjá Ásgeiri sem blakar boltanum í horn.
40. mín
Afturelding að vinna aukaspyrnu á hættulegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.

Keflavíik hreinsar.
35. mín MARK!
Mihael Mladen (Keflavík)
MAAARK!!! Keflvíkingar komnir tveimur mörkum yfir!

Þetta var klaufalegt. Keflavík að sækja og Mihael með boltann inn á teig heimamanna. Með nokkra varnarmenn í kringum sig en hann lætur vaða. Skýtur í átt að marki en boltinn skoppar af varnarmanni yfir Jökul og í markið. Keflavík tvöfaldar forystuna!
32. mín
Sami Kamel með skot fyri utan teig en boltinn laaangt framhjá markinu.
29. mín
Aron Jóns á þéttingfast skot meðfram jörðinni. Gott uppspil hjá heimamönnum en boltinn framhjá markinu.
27. mín
Afturelding fær hornspyrnu.

Aron kemur með hættuelgan bolta fyrir en Keflvíkingar hreinsa.
25. mín
Leikurinn stöðvaður. Elmar Kári liggur eftir höfuðhögg og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt.

Leikurinn hafinn á ný og virðist sem Elmar geti haldið leik áfram.
23. mín
Hætta! Kemur hættulegur bolti inn á teig Aftureldingar. Mihael Mladen í honum en nær ekki að stýra boltanum á markið,
19. mín
Langskot! Aron Jóns fær boltann rétt fyrir utan D-bogann. Á fast skot en boltinn yfir markið.
16. mín Gult spjald: Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
14. mín MARK!
Edon Osmani (Keflavík)
Keflavík tekur forystuna!! MAAAARK!!

Kemur eftir horn. Kemur fastur bolti meðfram jörðinni inn á teiginn og þar er Edon á réttum stað og klárar vel. Óverjandi fyrir Jökul í markinu. Keflvíkingar komnir yfir!
11. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Boltinn kemur inn á teiginn en vel gert hjá Ásgeiri í markinun sem grípur.
10. mín Gult spjald: Axel Ingi Jóhannesson (Keflavík)
Gróft brot. Réttur dómur.
8. mín
Skot á mark! Góð sókn hjá heimamönnum. Boltinn berst á Elmar rét fyrir utan teiginn. Hann á skot meðfram jörðinni. Fer af varnarmanni og í lúkurnar á Ásgeiri.
4. mín
Keflavík að fá aukaspyrnu á vænlegum stað.

Sami Kamel á skot í vegginn.
3. mín
Yfir! Sami Kamel á skot rétt yfir markið. Fær boltann á miðjum teignum en setur hann yfir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang! Það eru Keflvíkingar sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja! Þá ganga leikmenn inn á völlinn. Styttist í upphafsflautið!
Fyrir leik
Spámaðurinn! Úlfur Ágúst Björnsson, sóknarmaður FH, er spámaður umferðarinnar! Hann spáir Aftureldingu sigri í kvöld.

Afturelding 2 - 0 Keflavík
Afturelding tekur þennan leik 2-0. Jökull mættur í búrið og lokar því. Aron Jó og Elmar taka svo markaskorunina að sér.

   25.07.2024 14:34
Úlfur Ágúst spáir í 14. umferð Lengjudeildarinnar


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan í deildinni! Deildin er afar spenanndi og eru fá stig sem skilja liðin að!

1.Fjölnir - 30 stig
2.Njarðvík - 24 stig
3.ÍBV - 22 stig
4.ÍR - 19 stig
5.Þróttur - 18 stig
6.Keflavík - 18 stig
7.Þór Ak. - 17 stig
8.Grindavík - 17 stig
9.Afturelding - 17 stig
10.Leiknir R. - 12 stig
11.Grótta - 10 stig
12.Dalvík/Reynir - 8 stig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Gunnar Freyr Róbertsson verður á flautunni hér í kvöld og verða þeir Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage og Nour Natan Ninir sem verða honum til aðstoðar. Eftirlitsmaður er Frosti Viðar Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Freyr mun dæma leikinn hér í kvöld.
Fyrir leik
Keflavík hafði betur fyrr í sumar Liðin mættust á HS Orku vellinum fyrr í sumar og voru það Keflvíkingar sem báru sigur úr býtum. Keflavík vann 3-0 en Afturelding var manni færri frá því á 28. mínútu er Arnar Daði Jóhannesson var rekinn af velli. Mörk Keflavíkur skoruðu Sami Kamel og Valur Þór Hákonarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Jökull kominn til Aftureldingar Markvörður­inn Jök­ull Andrés­son er kom­inn til Aft­ur­eld­ing­ar á láni frá Rea­ding á Englandi en þangað fór hann frá Aft­ur­eld­ingu árið 2017. Jökull verður 23 ára eftir rúman mánuð en hann á að baki einn A-landsleik og sjö leiki fyrir yngri landsliðin.
   19.07.2024 16:21
Jökull í Aftureldingu (Staðfest) - „Ótrúlega spenntur"


Mynd: Afturelding

Fyrir leik
Gengi liðanna! Afturelding er fyrir leikinn í 9. sæti deildarinnar með 17 stig. Afutrelding mætti Gróttu á Vivaldi vellinum í síðustu umferð og sigraði þar sannfærandi 4-1. Eitt stig skilur Aftureldingu og Keflavík að fyrir kvöldið.

Mynd: Raggi Óla

Keflvíkingar eru í 6. sæti deildarinnar með 18 stig fyrir leikinn í kvöld. Keflavík mætti ÍR-ingum í Breiðholtinu í síðustu umferð. Keflavík vann 1-0 eftir að hafa komist yfir eftir sex mínútna leik.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Heil og sæl! Góða kvöldið kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign Aftureldingar og Keflavíkur. Leikurinn fer fram í Mosfellsbænum og hefst kl. 19:15!

Mynd: Raggi Óla

Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
5. Stefán Jón Friðriksson
6. Sindri Snær Magnússon
19. Edon Osmani ('57)
20. Mihael Mladen ('87)
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Sami Kamel ('64)
25. Frans Elvarsson (f) ('87)
26. Ásgeir Helgi Orrason
50. Oleksii Kovtun

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
10. Valur Þór Hákonarson ('64)
11. Rúnar Ingi Eysteinsson ('87)
14. Guðjón Pétur Stefánsson ('87)
21. Aron Örn Hákonarson
28. Kári Sigfússon ('57)
77. Sigurður Orri Ingimarsson

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Hólmar Örn Rúnarsson
Þórólfur Þorsteinsson
Helgi Bergmann Hermannsson
Luka Jagacic
Guðmundur Árni Þórðarson
Óskar Ingi Víglundsson

Gul spjöld:
Axel Ingi Jóhannesson ('10)
Kári Sigfússon ('90)

Rauð spjöld: