Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Ísland
Ísland
Þjóðadeildin
Laugardalsvöllur
2 - 0
Svartfjallaland
Svartfjallaland
Orri Steinn Óskarsson (f) 39'1 - 0Jón Dagur Þorsteinsson 58'2 - 0
Dómari: Willy Delajod (Frakkland)
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Fyrsti sigur Íslands í Þjóðardeildinni (Staðfest!)
Ísland vinnur Svartfjallaland með tveimur mörkum gegn engu hér á Laugardalsvelli! Við verðum með viðtöl síðar í kvöld.
92. mín
Áhorfendavaktin: 4.687
Hulda Geirsdóttir er búin að telja.
91. mín
Fjórar mínútur í uppbót
Svarið við því er hinsvegar nei að svo stöddu.
90. mín
Ísak Bergmann vinnur horn fyrir Ísland. Skildi þó ekki vera að við fengjum þriðja markið eftir horn?
Svartfjallaland
89. mín
Gult spjald

Stevan Jovetic

89. mín
Logi með bolta inn á teig sem Willum Þór virðist fá óvænt í sig og í fangið á Milan Mijatovic.
Ísland
88. mín
InnÍsak Bergmann Jóhannesson
ÚtOrri Steinn Óskarsson (f)
84. mín
Hrikaleg mistök í öftustu línu Svartfjallalands sem senda boltann beint í fætur Willums Þórs sem tekur þá á rás í átt að marki og lætur vaða en Milan Mijatovic sér við honum. Þarna var kjörið tækifæri á að reka síðasta naglann í þennan leik.
83. mín
Willum Þór kemur sér í skotfæri en skotið yfir markið.
82. mín
Íslenska liðið að komast í flotta stöðu en aðeins of fastur bolti í hlaupið á Arnór Sig frá Andra Lucas en Arnór Sig gerir vel og rennir sér á boltann og vinnur horn. Við náum hinsvegar ekkert að nýta okkur hornið að neinu ráði.
80. mín
Driton Camaj sterkari en Hjörtur Hermannsson sem missti fæturnar aðeins þegar þeir sparka báðir í boltann og Driton Camaj fær frábært færi einn á Hákon Rafn og lætur vaða en Hákon Rafn vandanum vaxinn og ver þetta virkilega vel.
Svartfjallaland
79. mín
InnStefan Mugosa
ÚtNikola Krstovic
Ísland
77. mín
InnWillum Þór Willumsson
ÚtMikael Anderson
77. mín
Hér áttum við að fá víti en ekkert dæmt
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
76. mín
Íslenska lið oft að komast í ágætis stöður en eru full seinir að hreyfa boltann og mómentið fer frá þeim.
74. mín
Mark Jóns Dags
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
73. mín
Hákon Rafn fær aðeins að vera með. Driton Camaj með léttan æfingarbolta á hann rétt til að halda honum heitum.
69. mín
Driton Camaj kemst í skotfæri en skotið hátt yfir.
66. mín
Jóhann Berg að komst í flotta stöðu og kemur með sendingu fyrir markið sem Mikael Anderson er að mæta á en Milan Mijatovic grípur inn í á síðustu stundu.
Ísland
65. mín
InnAndri Lucas Guðjohnsen
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Ísland
65. mín
InnArnór Sigurðsson
ÚtJón Dagur Þorsteinsson
63. mín
Bæði mörk Íslands komið eftir horn og líklega fáir jafn ánægðir að sjá þetta og Sölvi Geir Ottesen sem nýlega kom inn í starfslið KSÍ til að vinna í nákvæmlega þessu ásamt öðru.
61. mín
Nikola Krstovic með tilraun sem fer beint á Hákon Rafn í marki Íslands sem ver þetta.
Svartfjallaland
60. mín
InnDriton Camaj
ÚtMarko Vukcevic
Svartfjallaland
60. mín
InnStevan Jovetic
ÚtMilutin Osmajic
Ísland
58. mín
ÍSLENDINGAR TVÖFALDA!!

Jón Dagur Þorsteinsson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

Aftur eru það hornspyrnurnar að gefa!! Gylfi Þór með hornspyrnu á nærstöngina þar sem Jón Dagur flikkar boltanum aftur fyrir sig og í fjærhornið!
58. mín
Jóhann Berg með skot sem fer af varnarmanni og rétt framhjá.
57. mín
Jón Dagur hleypur á vörn Svartfellinga og er stöðvaður.
55. mín
Willy Delajod dómari gefur merki um ekkert. Orri Steinn stígur líklega á boltann og misstígur sig við það.
54. mín
Orri Steinn fer niður í teignum.. VAR?
54. mín
Íslenska liðið að fá horn. Þau hafa verið að skapa ursla fyrir Svartfellinga.
Ísland
53. mín
Gult spjald

Jón Dagur Þorsteinsson

Marko Vukcevic veiðir Jón Dag í þetta. Fannst ekki mikið í þessu en Marko gerði mikið úr þessu.
51. mín
VAR tekur þetta tilbaka!
Íslenska liðið fær tvö færi til að skora en Novica Erakovic hendir sér fyrir og fær hann í hendina að mati dómara en eftir VAR athugun er þetta allt tekið tilbaka. Hjörtur Hermanns og Orri Steinn í færunum.
50. mín
VÍTI!!!
49. mín
Orri Steinn vinnur hornspyrnu fyrir Ísland. Væri fínt að endurtaka leikinn frá því í fyrri.
48. mín
Kraftur í Íslandi í upphafi síðari.
46. mín
Vladimir Jovovic sparkar síðari hálfleiknum af stað.
45. mín
Orri, þessi gæi!
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Einn fremsti íþróttafréttamaður heims er á Laugardalsvelli
45. mín
Það er Íslenska liðið sem leiðir hérna í hálfleik. Óhætt að segja að það sé bara nokkuð sanngjarnt. Tökum okkur stutta pásu og snúum svo aftur með síðari hálfleikinn.
45. mín
Ein mínúta í uppbót
44. mín
Haukur Gunnarsson er með myndavélina
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland
39. mín
JÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!!!!!!!!!!

Orri Steinn Óskarsson (f) (stoðsending: Jóhann Berg Guðmundsson (F))

ÍSLAND ER KOMIÐ YFIR!!!! Jóhann Berg tekur hornspyrnu og Orri Steinn kemur á ferðinni og stangar boltann yfir Milan Mijatovic í marki Svartfjallalands! FRÁBÆR SKALLI!!!
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
37. mín
Þetta virkar allt voðalega hægt og erfitt hjá Íslenska liðinu.
34. mín
Vladimir Jovovic reynir að hlaða í sleggju en boltinn fer hátt yfir.
31. mín
Fyrirgjöf fyrir mark Íslands og Milutin Osmajic á skalla sem Hákon Rafn grípur nokkuð þægilega.
30. mín
Íslenska liðið að komast í flotta stöðu en Mikael Anderson með misheppnaða fyrirgjöf fyrir markið.
28. mín
Svartfellingar að þræða Nikola Krstovic í gegn en Hjörtur Hermannsson heldur vel í við hann og nær að blokka.
25. mín
Logi Tómasson er að fá stórt tækifæri í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Svartfjallaland
24. mín
Gult spjald

Milutin Osmajic

Gerast ekki vitlausari en þetta... Hrindir Mikael Anderson fyrir framan nefið á dómaranum.
22. mín
Logi Tómasson full gíraður með hlaup upp vinstri en missir boltann aðeins of langt frá sér og Svartfellingar koma boltanum burt.
22. mín
Gylfi Þór tekur spyrnuna sem er slök og beint í varnarvegginn.
Svartfjallaland
21. mín
Gult spjald

Risto Radunovic

Brýtur á Jóni Degi sem var kominn á ferðina. Ísland fær aukaspyrnu á flottum stað rétt utan við D-bogann aðeins til hægri.
19. mín
Gylfi spyrnir
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland
18. mín
Gult spjald

Jóhann Berg Guðmundsson (F)

Jóhann Berg fer hraustlega aftan í Vladimir Jovovic sem liggur eftir eins og hann sé stórslasaður en stendur svo upp og virðist ekki mikið hrjá hann þegar hann skokkar inn í teig. Jói fer í bókina.
17. mín
Við finnum Orra Stein í teignum sem reynir að skila boltanum lúmskt fyrir fætur Gylfa Þórs en Svartfellingar lesa það og koma boltanum frá.
14. mín
Svartfellingar finna Vladimir Jovovic á teignum og hann reynir að tía upp liðsfélaga í skot en Stefán Teitur kemst fyrir og sparkar boltanum frá.
12. mín
Logi Tómasson í smá brasi þegar hann hitti ekki boltann og Milutin Osmajic komst í óvænt skotfæri en skaut í hliðarnetið!
12. mín
Jói Berg og Alfons í eldlínunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
11. mín
Íslenska liðið leitar leiða í kringum þéttan Svartfellskan múr.
8. mín
Klafs á teignum eftir hornið en enginn nær að koma boltanum á markið og Svartfellingar fá á endanum aukaspyrnu.
7. mín
Léttleikandi
Virkilega skemmtilega spilað hjá Íslandi en fyrirgjöfin hjá Mikael Anderson ekkert sérstök en vinnur þó horn.
5. mín
Risto Radunovic sparkar Mikael Anderson niður sem er ekki ánægður með Svartfellinginn og lætur hann alveg vita af því.
4. mín
Áfram Ísland
Stúkurnar eru byrjaðar að kalla á milli.
2. mín
Jón Dagur reynir fyrirgjöf fyrir markið en Marko Tuci kemst fyrir.
1. mín
Það er Gylfi Þór sem sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Þjóðsöngvar
Þetta er að bresta á! Mikil stemning hjá Svartfjallalandi í stúkunni.
Fyrir leik
Hafa glímt við meiðsli í aðdraganda leiksins
Guðlaugur Victor og Arnór Ingvi höfðu verið að glíma við meiðsli í aðdraganda leiksins en þetta kom fram í viðtali við Davíð Snorra Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfara á Stöð 2 Sport. Þeir eru óvænt báðir meðal varamanna í kvöld.
Fyrir leik
Tippleikur starfsliðs Fótbolta.net, hvernig fer í kvöld?
Sæbjörn Steinke: 3-1 fyrir Ísland. Guðmundur Aðalsteinn: 3-0, Ísland. Orri Steinn fagnar félagaskiptunum til Sociedad með tveimur mörkum. Gylfi setur svo hitt markið beint úr aukaspyrnu. Þægilegur dagur á skrifstofunni. Tómas Þór: 2-1 Elvar Geir: 2-2, mjög Þjóðadeildarleg úrslit fyrir Ísland. Haukur Gunn: 3-1 Stefán Marteinn: 1-0
Fyrir leik
Jovetic á bekknum hjá gestunum
Mynd: Getty Images
Þjálfari Svartfellinga, Robert Prosinecki, sagði á fréttamannafundi í gær að Ísland væri með veikleika sem hans lið ætli að nýta sér. Hann greindi þar frá því að stærsta nafn liðsins, Stevan Jovetic, myndi byrja á bekknum. Þessi 34 ára sóknarmaður lék á sínum tima með Manchester City, Fiorentina og Inter en er nú án félags. Hann var síðast leikmaður Olympiakos í Grikklandi og kom inn af bekknum þegar liðið vann Fiorentina 1-0 í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar fyrr á árinu. Hann á að baki 78 landsleiki og hefur í þeim skorað 36 mörk. „Við þurfum að fara varlega með hann, hann hefur ekki spilað síðan gegn Georgíu í júní. Við eru með áætlun fyrir hann og þurfum að hafa í huga að við mætum Wales þremur dögum eftir leikinn gegn Íslandi. Það þarf ekki að ræða um hversu mikilvægur hann er fyrir okkur en við spörum hann fyrir leikinn gegn Wales," sagði Prosinecki. „Það er langt síðan hann spilaði síðast og hann er ekki í sömu leikæfingu og aðrir í liðinu." Prosinecki hefur skoðað síðustu landsleiki Íslands og segist sérstaklega hafa rýnt í umspilsleikinn gegn Úkraínu. „Við greindum þá vel, þeir áttu flotta kafla gegn Úkraínu en eru með veikleika sem við vonumst til að geta afhjúpað. Þeir hafa lent í meiðslum. Þeir eru klárlega með mjög gott lið og við berum virðingu fyrir þeim en getum ógnað þeim. Þetta verður vafalaust áhugaverður leikur."
Fyrir leik
Byrjunarliðið!
Landsliðsþjálfarinn Age Hareide er búinn að velja byrjunarliðið sitt. Frá síðasta landsleik, vináttuleiknum gegn Hollandi í júní, eru sjö breytingar. Alfons Sampsted, Hjörtur Hermannsson, Daniel Leó Grétarsson, Logi Tómasson, Stefán Teitur Þórðarson, Orri Steinn Óskarsson og Gylfi Þór Sigurðsson koma inn. Hákon Rafn Valdimarsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Jón Dagur Þorsteinsson og Mikael Neville Anderson halda sæti sínu í liðinu. Það vekur athygli að þeir Guðlaugur Victor Pálsson og Arnór Ingvi Traustason eru ekki í liðinu - eru á bekknum. Arnór var ekki með Norrköping í síðasta leik og Guðlaugur Victor hefur verið að glíma við meiðsli. Sverrir Ingi Ingason og Hákon Arnar Haraldsson meiddust í aðdraganda leiksins. Alls eru þetta fjórir leikmenn sem hafa verið í sterkasta byrjunarliði Íslands. Orri Steinn fær þá traustið í fremstu línu á kostnað Andra Lucasar sem er á bekknum. Gylfi Þór Sigurðsson er með Orra í fremstu línu.
Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Age Hareide tilkynnti byrjunarliðið á Ölveri
Það var mikið húllumhæ að vanda á Ölveri fyrir leikinn. Tómas Þór og Age Hareide skemmtu viðstöddum og sá norski afhjúpaði byrjunarlið sitt fyrir kvöldið.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Íslendingar bjartsýnir
Þó Þjóðadeildin hafi gefið íslenska landsliðinu tækifæri á að komast á stórmót í gegnum umspil þá hafa strákarnir okkar enn ekki unnið leik í keppninni. Sögulegur sigur San Marínó á Liechtenstein í gær gerði það að verkum að Ísland er eina þjóðin sem hefur ekki unnið leik í Þjóðadeildinni síðan keppnin var sett á laggirnar 2018. Lesendur Fótbolta.net búast við því að það breytist í kvöld og sigur vinnist á Svartfellingum. Tæplega 73% spá íslenskum sigri.
Mynd: Fótbolti.net
Fyrir leik
Það verður að bera fulla virðingu fyrir þessari keppni
„Í Reykjavík eigum við möguleika gegn hvaða liði sem er," sagði Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, á fréttamannafundi í gær. „Svartfjallaland er með gott lið, týpískt lið frá Balkanskaganum. Þeir eru líkamlega sterkir og með góða sóknarmenn. (Stefan) Jovetic er enn lykilmaður og hann hefur verið það í mörg ár. Hann spilar vel. Við þurfum að eiga okkar besta leik en við höfum sýnt að við getum strítt hvaða liði sem er," sagði Hareide á fundinum. „Það er mikilvægt að ná góðum úrslitum því við förum næst til Tyrklands og það verður erfiður leikur. Við höfum sýnt að við getum alltaf spilað vel og náð góðum úrslit, við stefnum á það."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði Íslands, sat einnig fundinn. Hann segir að nýtt tímabil sé að byrja. „Ég vona innilega að nú séu bjartari tímar. Við erum lítil þjóð og þetta verður upp og niður. Það þarf allt að smella svo við komumst á stórmót. Vonandi erum við á réttri leið og mér finnst við vera að finna hvernig við viljum spila, leikmenn eru að komast í stærri lið og taka meiri ábyrgð inni á vellinum. Þetta er á réttri leið, klárlega, en það þarf allt að smella." „Núna er nýtt tímabil að byrja hjá okkur og Þjóðadeildin hefur gefið okkur tvo leiki þar sem við vorum gríðarlega nálægt því að komast á stórmót. Það verður að bera fulla virðingu fyrir þessari keppni. Vonandi getum við staðið okkur vel og yngri leikmenn haldið áfram að taka stærri hlutverk, til að leiða okkur á enn eitt stórmótið," sagði Jóhann Berg.
Fyrir leik
„Höfum séð hvað Þjóðadeildin getur gert fyrir okkur“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er mjög mikilvægt að ná góðum árangri í Þjóðadeildinni," segir Andri Lucas Guðjohnsen sóknarmaður íslenska landsliðsins. Framundan er þessi leikur í kvöld og svo er útileikur gegn Tyrklandi á mánudag. Hvernig líst Andra á þessa leiki? „Bara frekar vel. Það er alltaf gaman að hitta strákana og sérstaklega gaman að spila hérna heima. Þetta eru tveir mikilvægir leikir þar sem við ætlum okkur að ná í sex stig." Ísland hefur tvisvar komist í umspil í gegnum Þjóðadeildina og þannig fengið tækifæri til að komast á stórmót. Við höfum því fengið að kynnast hvaða möguleikum keppnin hefur upp á að bjóða. „Við höfum séð hvað Þjóðadeildin getur gert fyrir okkur. Við fengum þessa umspilsleiki til dæmis síðast til að koma okkur á EM. Við náðum því miður ekki að nýta okkur þá," segir Andri. Ísland vann England á Wembley í vináttulandsleik í síðasta glugga. Andri segir að ýmislegt sé hægt að taka út úr þeim leikjum. „Það sást þar að þegar við spilum saman og erum þéttir varnarlega, þorum að spila, þá erum við mjög öflugir. Við erum með góða leikmenn sem hafa verið að fara til stórra liða í Evrópu"
   03.09.2024 16:40
Andri Lucas: Fótboltinn getur verið geggjaður og þetta er dæmi um það
Fyrir leik
Sverrir Ingi og Hákon Arnar ekki með
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Ingi Ingason þurfti að draga sig úr upprunalega hópnum vegna meiðsla. Það munar um minna því við Íslendingar eigum ekki mikið úrval af varnarmönnum því miður. Júlíus Magnússon kom á endanum inn í hópinn í stað Sverris en hann er miðjumaður. Á miðvikudagskvöld var svo tilkynnt að Hákon Arnar Haraldsson þyrfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla. Ekki hefur verið kallaður inn leikmaður í staðinn.
Fyrir leik
Frakkar sjá um dómgæsluna
Mynd: Getty Images
Franski dómarinn Willy Delajod mun dæma leikinn í kvöld. Delajod er 31 árs en byrjaði 13 ára gamall að dæma fótboltaleiki. Hann byrjaði að dæma í efstu deild Frakklands 2018, 25 ára gamall, og varð yngstur til að dæma í deildinni. Allt dómarateymið í kvöld kemur frá Frakklandi, aðstoðardómarar verða Erwan Finjean og Philippe Jeanne. Fjórði dómari verður Marc Bollengier og VAR dómari Benoît Millot.
Fyrir leik
Þetta er okkar staður, þetta er okkar stund!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Tyrklandi og Wales í B-deild Þjóðadeildarinnar og hefur keppni gegn Svartfjallalandi á Laugardalsvelli í kvöld! Eins og við þekkjum þá mun það lið sem vinnur riðilinn fara upp í A-deild og neðsta liðið falla niður í C-deild. Breytt fyrirkomulag tekur gildi hvað varðar 2. og 3. sætið. Þau lið sem þar enda fara í umspilseinvígi: Ef Ísland endar í öðru sæti fer það í umspil (heima og að heiman) við lið úr A-deild þar sem keppt er um sæti í A-deildinni. Ef Ísland endar í þriðja sæti fer það í umspil (heima og að heiman) við lið úr C-deild þar sem keppt er um sæti í B-deildinni. Það lið sem tapar verður í C-deildinni næst. Þessi útgáfa Þjóðadeildarinnar tengist HM 2026 og gefur möguleika á að tryggja sér þátttökurétt þar í gegnum umspil. Leikir Íslands Ísland - Svartfjallaland föstudaginn 6. september Tyrkland - Ísland mánudaginn 9. september Ísland - Wales föstudaginn 11. október Ísland - Tyrkland mánudaginn 14. október Svartfjallaland - Ísland laugardaginn 16. nóvember Wales - Ísland þriðjudaginn 19. nóvember
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.