Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
KA
KA
2 - 2
KR
KR
0 - 110' Luke Morgan Conrad RaeÁsgeir Sigurgeirsson 25'1 - 1Hans Viktor Guðmundsson 32'2 - 12 - 243' Jóhannes Kristinn Bjarnason 88' Aron Sigurðarson95' Hjalti Sigurðsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
Svakalegum leik lokið. Mörkin í fyrri hálfleik og allskonar í gangi í seinni.
97. mín
Halldór grípur boltann eftir hornspyrnu
KR
95. mín
Annað rautt!!

Hjalti Sigurðsson

Rífur í Jakob Snæ á miðjum vellinum! Engin hætta.
KR
94. mín
InnKristófer Orri Pétursson
ÚtEiður Gauti Sæbjörnsson
93. mín
Eiður Gauti lá eftir hornspyrnu. Staðinn á fætur en KR eru tveimur mönnum færri hér í smá stund.
90. mín
Sex mínútur í uppbótatíma
KR
88. mín
Rautt spjald

Aron Sigurðarson

Slær til Andra Fannars! Það er hasar í þessu!
KR
87. mín
Gult spjald

Guðmundur Andri Tryggvason

KR
85. mín
Gult spjald

Ástbjörn Þórðarson

Ástbjörn að stimpla sig inn. Traðkar á Ívari.
KR
84. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtGabríel Hrannar Eyjólfsson
KA
84. mín
InnGuðjón Ernir Hrafnkelsson
ÚtHrannar Björn Steingrímsson
KA
84. mín
InnAndri Fannar Stefánsson
ÚtViðar Örn Kjartansson
KR
84. mín
InnÁstbjörn Þórðarson
ÚtAtli Sigurjónsson
KA
82. mín
Gult spjald

Hrannar Björn Steingrímsson

Hrannar fær verðskuldað gult spjald
80. mín
Ingimar Stöle með skot sem Halldór ver frá honum.
79. mín
Viðar Örn kemst í gegn eftir laglegan skalla frá Jakobi inn fyrir en hann er of lengi að athafna sig og þetta rennur út í sandinn.
KR
76. mín
Gult spjald

Atli Sigurjónsson

74. mín
Eiður Gauti í fínu færi en hittir boltann illa.
KA
74. mín
InnJakob Snær Árnason
ÚtÁsgeir Sigurgeirsson
73. mín
Guðmundur Andri með fyrirgjöf en boltinn of nálægt Stubb sem nær boltanum.
KR
68. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
KA
67. mín
Gult spjald

Rodrigo Gomes Mateo

64. mín
Nálægt
Jóhannes Kristinn kemst einn í gegn og á skot sem fer í stöngina og í fangið á Stubb.
59. mín
Hrannar með fyrirgjöf Ásgeir og Halldór berjast um boltann sem fer framhjá.
KA
57. mín
Gult spjald

Hans Viktor Guðmundsson

Fer glannalega í Aron Sig
54. mín
Ívar Örn og Finnur Tómas skalla saman eftir hornspyrnu hjá KA. Þeir voru báðir fljótir að jafna sig.
KR
53. mín
Gult spjald

Aron Þórður Albertsson

50. mín
Dagur Ingi Valsson kominn í fína stöðu inn á teignum, reynir að koma boltanum fyrir en boltinn fer af varnarmanni og í fagnið á Halldóri.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
KR
46. mín
InnAron Þórður Albertsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
Skipting hjá KR í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
+3
Mikið fjör í þessum fyrri hálfleik. Vonandi bara meira af því sama í seinni
45. mín
+2
Hjalti staðinn upp eftir að hafa fengið skell. Hann hljóp á Grímsa
45. mín
Tvær mínútur í uppbótatíma
KR
45. mín
Gult spjald

Hjalti Sigurðsson

KR
43. mín
Vááá

Jóhannes Kristinn Bjarnason

Frábært mark hjá Jóhannesi. Finnur Tómas lagði boltann á Jóhannes sem skaut fyrir utan teiginn og boltinn sveif yfir Stubb og í fjærhornið
KA
42. mín
Gult spjald

Dagur Ingi Valsson

41. mín
Frekar rólegt undanfarnar mínútur. KA verið aðeins ofan á.
36. mín
Lagleg sending hjá Viðari Erni á Grímsa sem á skot sem fer af varnarmanni og í horn. Ekkert kemur út úr horninu.
KA
32. mín
KA komið yfir!

Hans Viktor Guðmundsson

Ásgeir flikkar boltanum aftur fyrir sig eftir hornspyrnu og Hans stekkur hæst og setur boltann í netið
KA
28. mín
Gult spjald

Ásgeir Sigurgeirsson

Brýtur á Aroni Sig.
26. mín
Eiður Gauti sendir boltann inn fyrir vörn KA og Jóhannes Kristinn er kominn í gegn en Stubbur ver frá honum.
KA
25. mín
Maaaark

Ásgeir Sigurgeirsson

Hans Viktor á sendingu inn á teiginn og Bjarni Aðalsteins 'kassar' boltann á Ásgeir. Hann á ekki frábært skot en Halldór nær ekki að halda boltanum frá markinu.
23. mín
Halldór Snær með langa sendingu fram á Luke Rae sem er fljótur að fara í skotið og boltinn fer vel yfir markið.
21. mín
KA fær aukaspyrnu á hættulegum stað
Hallgrímur Mar með fast skot í vegginn og KRingar koma boltanum frá.
20. mín
Leikurinn búinn að vera stopp í nokkrar mínútur. Rodri þurfti einhverja aðhlynningu í andliti. Hann er heill á húfi.
15. mín
Aron Sigurðarson með skot rétt framhjá
14. mín
Hallgrímur Mar Steingrímsson með skot beint úr aukaspyrnu og skotið strýkur þaknetið.
13. mín
ÁSGEIR!
Ásgeir Sigurgeirsson kemst einn í gegn en lætur Halldór Snæ verja frá sér. Átti að gera betur þarna en tek ekkert af Halldóri.
KR
10. mín
Maaark!

Luke Morgan Conrad Rae (stoðsending: Atli Sigurjónsson)

Hriikaleg mistök hjá Ívari Erni. Sendir boltann beint á Atla Sigurjónsson sem sendir Luke Rae í gegn og hann skorar að öryggi. Frábær vippa!
9. mín
Atgangur inn á teig KR. Þeim tekst að koma í veg fyrir skot hjá KA mönnum og þetta rennur út í sandinn.
6. mín
Eiður Gauti Sæbjörnsson nær skot í góðu færi en hittir ekki markið. Það skipti litlu þar sem hann var dæmdur rangstæður.
2. mín
KA fær horn. KRingar skalla frá en KA vinnur boltann aftur en ná ekki að byggja upp sókn.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir koma þessu af stað
Fyrir leik
Þetta er að fara í gang rétt bráðum. Liðin eru að ganga út á völl.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
KA hefur verið að berjast mikið við meiðsli á undirbúningstímabilinu og þar á meðal hefur Hallgrímur Mar Steingrímsson verið á meiðslalistaum en hann er klár í slaginn og byrjar í dag.

Aron Sigurðarson hefur einnig verið að kljást við meiðsli hjá KR en fyrirliði liðsins eer klár í að byrja í dag.
Fyrir leik
Dómarateymið
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna hér í dag. Ragnar Þór Bender og Eðvarð Eðvarðsson eru honum til aðstoðar og Sveinn Arnarsson er fjórði dómari. Vilhelm Adolfsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
KR spáð 4. sæti
Fyrsta heila tímabil Óskars Hrafns með mjög breytt KR lið frá því í fyrra. Liðið hafnaði í 8. sæti í fyrra en Fótbolti.net spáir mun betri árangri í ár.

   01.04.2025 14:00
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 4. sæti
Fyrir leik
KA spáð 8. sæti
KA er spáð einu sæti neðar en það hafnaði í fyrra að mati Fótbolta.net. Sterkir leikmenn á borð við Daníel Hafsteinsson og Sveinn Margeir Hauksson hafa horfið á braut og liðinu hefur ekki tekist að styrkja sig nægilega vel hingað til.

   28.03.2025 15:00
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 8. sæti
Fyrir leik
Miklar breytingar hjá KR
Komnir
Júlíus Mar Júlíusson frá Fjölni
Halldór Snær Georgsson frá Fjölni
Alexander Helgi Sigurðarson frá Breiðabliki
Eiður Gauti Sæbjörnsson frá HK
Atli Hrafn Andrason frá HK
Vicente Valor frá ÍBV
Róbert Elís Hlynsson frá ÍR
Hjalti Sigurðsson frá Leikni
Matthias Præst frá Fylki
Kristófer Orri Pétursson frá Gróttu
Gabríel Hrannar Eyjólfsson frá Gróttu
Óliver Dagur Thorlacius frá Fjölni

Farnir
Benoný Breki Andrésson til Stockport
Theodór Elmar Bjarnason til KV og orðinn aðstoðarþjálfari
Alex Þór Hauksson til Stjörnunnar
Axel Óskar Andrésson í Aftureldingu
Guy Smit í Vestra
Jón Arnar Sigurðsson í Leikni (á láni)
Jakob Gunnar Sigurðsson til Þróttar R. (á láni, keyptur frá Völsungi síðasta sumar)
Óðinn Bjarkason í ÍR (á láni)
Lúkas Magni Magnason
Eyþór Aron Wöhler í Fylki
Hrafn Guðmundsson til Stjörnunnar
Rúrik Gunnarsson til HK
Viktor Orri Guðmundsson í Gróttu
Dagur Bjarkason í Gróttu
Björgvin Brimi Andrésson í Gróttu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti er kominn í KR
Fyrir leik
KA hefur misst sterka leikmenn í vetur
Komnir
Jóan Símun Edmundsson frá N-Makedóníu
Jonathan Rasheed frá Svíþjóð (frá út tímabilið)
William Tönning frá Svíþjóð
Guðjón Ernir Hrafnkelsson frá ÍBV
Ingimar Torbjörnsson Stöle frá FH (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason keyptur frá Hetti/Hugin (lánaður til baka)

Farnir
Daníel Hafsteinsson í Víking
Sveinn Margeir Hauksson í Víking
Elfar Árni Aðalsteinsson í Völsung
Harley Willard á Selfoss
Kristijan Jajalo til Austurríkis
Darko Bulatovic til Svartfjallalands
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Jóan Símun er mættur aftur til KA
Fyrir leik
Góðan daginn
Veislan er hafin! Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og KR í fyrstu umferð Bestu deildarinnar þetta sumarið. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.