SKÝRSLAN: Sex mörk, tvö rauð og mark í uppbótartíma
Hvað réði úrslitum?
HK-ingar voru með gífurlega yfirburði, þá sérstaklega í fyrri hálfleik ótrúlegt að liðinu hafi einungis tekist að skora eitt mark. Grindvíkingar komu þó betri út í síðari hálfleikinn og komust óvænt í 1-3 forystu. HK-ingar voru við það að missa trúnna þegar Jóhann Þór minnkaði muninn og í kjölfarið kom jöfnuðu þeir metin. Ef lífið væri sanngjarnt, hefði HK farið með sigur af hólmi í dag, en því miður fyrir HK-inga er lífið ekki sanngjarnt.
Bestu leikmenn
1. Matias Niemela
Markvörður Grindavíkur frábær þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk, varði frábærlega og hélt þeim inni í leiknum.
2. Jóhann Þór Arnarsson
Frábær innkoma hjá varamanninum, kemur inn og skorar annað mark HK og veldur miklum usla. Átti jafnframt frábært skot fyrir utan teig sem hafnaði í þverslánni.
Atvikið
Þegar Þorsteinn Aron jafnar metin á sjöttu mínútu í uppbótartíma, með góðum skalla. Annars getur það verið þegar Aron Kristófer reif leikmann Grindavíkur niður í skyndisókn þeirra og fékk gult spjald. Hermann Hreiðarsson, þjálfari HK, mótmælti rauða spjaldinu og fékk þá að líta það rauða sjálfur.
Hvað þýða úrslitin?
HK er nú með þriggja stiga forskot á Keflvíkinga sem eru í 6. sæti deildarinnar og berjast um að komast í umspilssæti.
Grindvíkingar eru þremur stigum frá fallsæti og eiga spennandi viðureign gegn Fylki í næstu umferð.
Vondur dagur
Ólafur Örn Ásgeirsson, markvörður HK, hefur verið einn besti leikmaður liðsins í sumar en var ekki á sínum degi í dag. Gaf fyrsta markið og svo fannst mér hann eiga að verja annað markið. Sömuleiðis var Aron Kristófer Lárusson ekki á sínum besta degi og kórónaði frammistöðuna með að láta reka sig af velli undir lok leiks. Vörn HK sundurspiluð í öðru marki Grindvíkinga.
Dómarinn - 7
Skrýtnir dómar hér og þar, en ekkert stórt að mínu mati. Réttur dómur að gefa Aroni Kristóferi seinna gula undir lok leiks.



