Fotbolti.net
Besta deildin
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta-deild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
3 - 3
KA
KA
0 - 122' Guðjón Ernir HrafnkelssonÞórður Gunnar Hafþórsson 49'1 - 1Benjamin Stokke (misnotað víti) 59'1 - 263' Hallgrímur Mar Steingrímsson (víti)Aketchi Luc-Martin Kassi 79'2 - 22 - 384' Hallgrímur Mar SteingrímssonAron Jóhannsson 85'3 - 3
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Markaveisla í Mosfellsbæ

Hvað réði úrslitum?

KA menn voru frábærir fyrstu 25 mínúturnar og hefðu átt að skora fleiri en þetta eina mark sem þeir gerðu þá. Eftir það komst Afturelding betur inn í leikinn og eftir það var þetta gífurlega kaflaskipt. KA kemst þrisvar yfir í leiknum en Afturelding gafst aldrei upp og jöfnunarmörk númer tvö og þrjú voru stórkostleg mörk hjá þeim.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)

Grímsi skorar tvö og eins og svo oft áður var hann undirstaðan í sóknarleik KA manna.

2. Georg Bjarnason (Afturelding)

Tvær stoðsendingar hjá Georgi, hann var eins og rennilás upp og niður hægri kantinn hjá Aftureldingu. Mikið af virkilega góðum fyrirgjöfum.

Atvikið

KA kemst í 3-2 á 84. mínútu og flestir norðanmenn héldu líkast til að þeir væru að vinna leikinn með því marki. Þá taka hins vegar Afturelding miðju. Koma boltanum á Arnór Gauta sem tekur svakalegan sprett upp hægri kantinn, svo kemur frábær fyrirgjöf á Aron Jó sem stangar boltann í netið.

Hvað þýða úrslitin?

KA er í 8. sæti deildarinnar með 23 stig, tveimur stigum á eftir 6. sætinu, og þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Afturelding lyftir sér úr fallsæti að minnsta kosti tímabundið, einu stigi fyrir ofan KR.

Vondur dagur

Mjög erfitt val í dag. Mörkin eru flest öll svo góð, að það er erfitt að skella skömminni á varnarmenn þrátt fyrir að það hafi komið sex mörk í leiknum. Stokke klúðrar víti, en Stubburinn varði það reyndar mjög vel. Þá á Ásgeir Sigurgeirs og Ívar Örn skot í slá og stöng í fyrri hálfleik þegar KA átti sinn besta kafla. Leikurinn hefði getað verið töluvert öðruvísi ef þetta dettur fyrir annað hvort liðið.

Dómarinn - 7

Nokkur skipti sem mér fannst línan hjá Helga og teymi sérkennileg. Hins vegar sýnist mér vítaspyrnudómarnir og ekki dómarnir hafa allir verið réttir hjá þeim.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.