Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild karla
Kópavogsvöllur
4 - 5
FH
FH
Davíð Ingvarsson 25'1 - 01 - 132' Kristján Flóki FinnbogasonDavíð Ingvarsson 36'2 - 12 - 247' Björn Daníel Sverrisson2 - 355' Bragi Karl Bjarkason2 - 458' Bragi Karl Bjarkason2 - 566' Sigurður Bjartur HallssonKristófer Ingi Kristinsson 84'3 - 5Ásgeir Helgi Orrason 89'4 - 5
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH vann á gervigrasi

Hvað réði úrslitum?

FH-ingar voru líklegri til þess að skora í fyrri hálfleiknum fannst mér en fóru í hálfleikinn einu marki undir. Björn Daníel gerði frábærlega að jafna þetta strax í upphafi síðari hálfleiks en skiptingin þegar Bragi Karl kemur inn á breytti leiknum. Hann situr tvö mörk um leið og hann kemur inn á og eiginlega vinnur þetta fyrir FH.

Bestu leikmenn

1. Bragi Karl Bjarkason

Erfitt að horfa framhjá varamanninum sem bara breytti þessu í dag. Kemur inn á og setur strax tvö. Gerir vel í báðum mörkunum en sérstaklega seinna markinu fannst mér. Fær boltann skoppandi inn á teignum og gerir mjög vel að setja hann framhjá Antoni. Hans fyrstu mörk í FH treyjunni.

2. Davíð Ingvarsson

Var 50/50 með hann eða Kjartan Kára en endaði á Davíð. Skorar tvö gegn uppeldisfélaginu og tvö mjög góð mörk. Góðar afgreiðslur og bara góð gæði í þeim mörkum. Mörkin komu líka á góðum tíma fyrir Blikana sem voru ekki búnir að gera mikið sóknarlega í leiknum.

Atvikið

Atvik leiksins gerðist á 54. mínútu þegar Bragi Karl kemur inn á fyrir Kristján Flóka. Bragi skoraði eitt með sinni fyrstu snertingu þegar hann var búinn að vera inná í 40 sekúndur rúmlega og bætti svo öðru við skömmu seinna. Hann breytti bara leiknum fyrir FH.

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar eru komnir upp í efri hlutann, 6. sætið, á meðan Blikar eru í 3. sætinu. Valsarar töpuðu í Eyjum en Víkingar unnu á Skaganum þannig það hefði verið sterkt fyrir Blika að vinna í kvöld. FH-ingar unnu líka loksins á gervigrasi, sú grýla er mikið búinn að vera í umræðunni.

Vondur dagur

Mér fannst spes taktur í öllu Blika liðinu. Það var kannski ekki fyrr en Dóri gerði fjórfalda breytingu í seinni hálfleiknum þar sem mér fannst þeir vakna aðeins. Ef ég ætti að velja ein væri það Viktor Örn. Var mjög ólíkur sjálfum sér með sendingafeila inn á milli og ekki góður varnarlega í dag líka eins og svosem aðrir hjá Breiðablik í kvöld.

Dómarinn - 7

Bara vel dæmdur leikur hjá Twana að mínu mati. Alveg einn og einn dómur hér og þar sem ég var ósammála en almennt bara vel dæmt hjá þeim held ég.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.