SKÝRSLAN: Lífsnauðsynlegur sigur Fjölnis
Hvað réði úrslitum?
Þetta var frekar lokaður leikur. Fjölnismenn unnu þetta á baráttunni.
Bestu leikmenn
1. Daníel Ingvar Ingvarsson
Góður á miðjunni. Kórónaði flottan leik með marki.
2. Árni Steinn Sigursteinsson
Kraftur í honum. Síógnandi
Atvikið
Fyrsta markið. Slæm sending til baka frá Daða Kárasyni og Fjölnismenn komust yfir
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn eru komnir úr fallsæti, í bili að minnsta kosti. Og soga Selfyssinga aftur í fallbaráttuna.
Vondur dagur
Selfossliðið var andlaust framan af fyrri hálfleik. Ekki sami kraftur og í leiknum í miðri viku. Lagaðist eftir því sem líða tók á leikinn en það gengur ekki að mæta í svona leik með þessu hugarfari.
Dómarinn - 6
Missti af augljósri vítaspyrnu en sem betur fer fyrir hann kom það ekki að sök fyrir Fjölnismenn. Stundum svolítið soft lína hjá honum.



