Fotbolti.net
@HilmarjokullHilmar Jökull Stefánsson
Hilmar Jökull Stefánsson
Fylkir
Fylkir
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Grátt yfir öllu en annars ágætt veður
4 - 0
Keflavík
Keflavík
Arnór Breki Ásþórsson 32'1 - 0Benedikt Daríus Garðarsson 68'2 - 0Benedikt Daríus Garðarsson 70'3 - 0Guðmundur Tyrfingsson 73'4 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: 5 mínútur sem skiptu öllu máli

Hvað réði úrslitum?

Ótrúlegar 5 mínútur í síðari hálfleik. Arnar Grétarsson er væntanlega grenjandi úr hlátri inni í klefa núna, hugsandi um þessar skiptingar sínar í seinni hálfleik. Benedikt Daríus kom inn á á 65. mínútu og 8 mínútum seinna var staðan farin úr 1-0 í 4-0 og Fylkir gjörsamlega búið að klára þennan leik.

Bestu leikmenn

1. Benedikt Daríus Garðarson (Fylkir)

Stundum þarftu ekki að gera mest, heldur hafa mestu áhrifin. Undirritaður hefur ekki hugmynd um hvort þessi spakmæli hafi verið sögð áður en þetta á vel við um Benedikt Daríus. Hann spilaði rétt undir 30 mínútur í dag en eftir að hann kom inn á þá gjörbreytist sóknarleikur heimamanna og þeir voru búnir að skora 3 mörk 8 mínútum eftir innkomu Benedikts.

2. Orri Sveinn Segatta (Fylkir)

Það eru allavega þrír gæjar í Fylkisliðinu sem „eiga það skilið“ að vera í þessum dálk en komast ekki inn. Orri Sveinn er ein stærsta ástæðan fyrir því að Keflavík skoraði ekki mark í leiknum. Stóð keikur í vörninni og gerði sóknarmönnum Keflavíkur lífið leitt allan leikinn. Arnór Breki, Nikulás Val og Pablo Simon voru líka frábærir í dag.

Atvikið

3-0 markið. Það er gömul saga og ný að 3. markið í fótboltaleikjum er alla jafna það mikilvægasta. Benedikt Daríus kom inn á í stöðunni 1-0 á 65. mínútu og þegar hann skorar sitt annað mark á 5 mínútum á 70. mínútu þá var leikurinn búinn.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða að draumur Keflvíkinga um að komast í umspilið verður fjarlægari á meðan að von Fylkis um að halda sér í Lengjudeildinni styrkist. Fylkir fer upp í 11. sætið, með stigi meira en Leiknir sem á leik á Húsavík í dag.

Vondur dagur

Fannst allt Keflavíkurliðið vont í seinni hálfleik en ég ætla að nýta þennan glugga til að segja að það er vondur dagur fyrir Ragnar Braga og Fylki að fyrirliðinn hafi meiðst illa á 37. mínútu leiksins. Vonum að hann jafni sig fljótt og örugglega.

Dómarinn - 8

Ekkert við Gunnar Frey og hans teymi að sakast. Gul spjöld rétt og ágætt flæði. Ekki svo erfiður leikur að dæma satt best að segja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.